Kafka skrifaði víst einhverja langloku um sama efni en ég læt það duga að rita hér stuttan pistil:
Hamskipti hugans myndu ríma í samheitaorðabókinni við Geðvangur (þó og einungis í vissum tilfellum, fyrirspurnum verður ekki svarað.) Vegna framapots reyndi ég að velja nafn sem er í senn göfugt, forvitnilegt, íslenzkt (þ.e.a.s. svo gamalt að setan var ekki dottin úr málinu (velvirðing snerti þetta ykkur á næmum stöðum), þjált, fallegt, vel ilmandi, o.s.frv. Ég er hvorki kominn af góðum né slæmum ættum því ég er hafinn yfir gildismat. Ég er því sem hér segir:
Genginn Þengill, Geðvangur af ættum,
Gægist hingað, sér anga af sættum
Silfrað bakið, gylltur
ýlfrar í lakið, stilltur.
Grágult tunglið, gegnir þessum vættum
En sum sé: komið hálf og sæl, ég er mættur til leiks, fullur geðslegra eftirvæntinga sem kunnu breytast með tíð og tíma
Komdu heill og sæll og vertu velkominn. Gaman að þú kynnir þig með limru.
Persónulega finnst mér vanta stuðla í þriðju og fjórðu línu en margir eru á því að limruformið sé frjálst.
Hæ annars bara.
Velkominn Þengill... þetta er skemmtileg innkoma... xT
Velkominn Þengill. Ég vona að þú sért góður en ekki illur.
Ljómar upp
Ég veit bara um vonda Þengla.
Þá veistu nú ekki mikið Úbbi minn.
Hvort stendur Geðvangur fyrir geðgóður eða geðillur?
Starir í forundran á Tigru Ha? Um hvað ertu að tala? Ég hélt þetta væri heimilisfangið hans. Er hann annars ekki úr Norðurbænum? Klórar sér í höfðinu
Er Geðvangur ekki næsta gata við Breiðvang?
Þá veistu nú ekki mikið Úbbi minn.
hnussar
Geðvangur: veruleikafirrtur. Sá sem sleppt hefur tökum á raunveruleika. Annars mun hann ekki sjást hér meir, því er nú verr og miður
Af hverju? Er hann aukaegóið þitt?
Annars, hérna, hórkarl. Dularfulli maðurinn fékk Enter til að breyta nafninu sínu í Dula. Þannig að það er hægt að breyta nöfnum.
Já, var öllu heldur fyrst það er búið að loka fyrir hann. En ég ætti kannski að beita mér frekar fyrir nafnabreytingu, tek varla mark á sjálfum mér með þetta ónefni
Það er eflaust ekki búið að loka fyrir hann.
Prófaðu að eyða kökum úr vafranum og sjáðu hvort þú komist ekki inn eftir það.
(Þetta er alþekkt vandamál.)
Takk fyrir ábendinguna en það gekk ekki. Vangaveltur Skabba og Hlebba um aukasjálfið mitt voru á sama tíma og ég komst ekki lengur inn á því notendanafni. Því gruna ég þá um græsku en kannski er þetta einhver sjaldgæfur netsjúkdómur sem herjar á Þengil
Klórar sér í höfðinu Hvernig (og hvers vegna) í ósköpunum ættu Skabbi og Hlebbi að hafa gert eitthvað við Þengil?
Vegna tengsla við yfirvöld og tímasetningar gerði ég ráð fyrir að lokað hefði verið á mig. Er það ekki til siðs hér að dreap aukasjálf?