Ég er búin að senda heilögum Enter 3svar sinnum póst. Núna prófaði ég að skíra hann lesbía. Kannski að hann lesi þennan..
Er algjörlega að verða örvingluð úr taugarálagi og hjartaráfallateymisvinnu... titrar og skelfur Blóðið í mér fer að fara á hvolf og taugarnar í flækju. Grætur með ekka
Ertu bara með eina taug og hvað kemur hjörtur þessu við?
Skreppur...slær Skrepp laust í hausinn með munnstikkinu Ég er komin með mynd... Og greiddu þér. Það er hörmung að sjá á þér óreiðuna.
Elsku besti Enter minn
einum þér má treysta
Lokkumynd að leggja inn
á lesbíu með neista
Sendu honum þessa vísu með myndinni og hann mun örugglega setja hana inn.
Elsku besti Enter minn
einum þér má treysta
Lokkumynd að leggja inn
á lesbíu með neista
Sendu honum þessa vísu með myndinni og hann mun örugglega setja hana inn.
En settu lesbíur í innihaldstexta þá opnar hann klárlega póstinn...Ljómar upp
Hæ Móri og Stella Orlofa mikið svakalega er þið orðin fín með flottar myndir. Ljómar upp
Elsku besti Enter minn
einum þér má treysta
Lokkumynd að leggja inn
á lesbíu með neista
Sendu honum þessa vísu með myndinni og hann mun örugglega setja hana inn.
En settu lesbíur í innihaldstexta þá opnar hann klárlega póstinn...Ljómar upp
Já, ég ætla að gera það. Mig grunar helst að Enter hafi ekki þótt það mér sæmandi að vera eingöngu með eitt rautt x, eins og myndin sem ég sendi inn sýndi.
Þá skaltu finna þér nýja mynd.
Já, ég sendi inn nokkrar nýjar myndir og nú bíð ég spennt eftir útkomunni.
Tekur yfir Apaplánetuna
Til hamingju með það heillakarlinn!
Hann nennir því ekki og ætlar því að láta Núma um það.
hef verið í svo slæmu sambandi að þegar ég reyni að tengast þá stíflast ekki bara allt símkerfið heldur fljótið dalurinn og helvítis hásléttan líka. Öll dýr á 600 fermílna svæði fá harðlífi nema hundarnir sem hafa vit á að detta í það og fá drullu.
Verð kominn til kreppuborgar um næstu mánaðarmót og mun hrellla ykkur á Kaffi blút og skabbalút ef þau sorapleis verða opinn.