An American and an Icelander were sitting at a bar.
The American said:
*'We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Johnny Cash.'*
And an Icelander replied:
'We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash'.
Kæri nýliði: Það er orðið allt of mikið af ensku hérna. Of margir sletta. Til dæmis sá ég bakklykilinn nefndan upp á ensku nýlega.
Eða eins og Enter segir:
Umræður skulu fara fram á íslensku, vandaðri.
Og svo ég svari nú spurningunni: Já, ég hef heyrt þennan.
Æ þau voru full þegar þau töluðu um bakklykilinn, það er allavega smá afsökun. Það er engin afsökun fyrir þessu. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Rekur nefið aftur inn Og já, ég var búin að heyra hann! Skellir aftur
Nei ég hef ekki heyrt hann en ég hef lesið hann.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég hef bæði heyrt hann og lesið hann. Klórar sér í höfðinu
Þetta er nú varla fyndið núna frekar en endranær.
En hafiði heyrt þennan.
Talar úglensku með íslenskum fullukalla hreim
A Djú, a pólak and a blond wolk intú a pöbb og ðe bartender ses "Vatt iss ðiss, somm kænd off djók?
Þetta er eldgamall brandari dubbaður upp í nýjan búning.
Ég vil fá nýjan brandara takk, helst einhvern sem ég hef ekki heyrt áður.
Til dæmis sá ég bakklykilinn nefndan upp á ensku nýlega.
Ég get breytt þessu núna, ef það kætir þig. Glottir eins og fífl
Annars þá er spurning hvort Enter breyti nafni sínu ekki í Vendihnapp í leiðinni. Glottir meira og fíflalegar
Ég hef ekki heyrt né séð þennan Bússbrandara. En hann er ekkert sérlega fyndinn heldur.
-Einstæð móðir kemur inn til læknis síns alveg brjáluð og segist vanta einhverja lausn því börnin hennar eru að gera hana brjálaða. Læknirinn spyr hvort hún hafi enga stjórn en hún svarar honum fullum hálsi að það þýði ekkert að reyna, þau hlýði engu. Hún er orðin svo reið og leið á þessu að hún gæti hugsað sér að murka kvikindin. Læknirinn lætur hana fá einhver lyf við þessu og hún fer við svo búið.
Einhverjum vikum seinna kemur hún aftur og segir:
"Hææææææ..."
-"Sæl vertu, hvað segirðu gott?"
"Þa bara aaaaalllllt geeeegt..."
-"Jæja? Og hvernig gengur með börnin?
"Hverjum er ekki drullusama?"
Ég hef nú leyft mér að sletta þegar ég tala um ýmislegt er tengist tölvum. Ég segi ekki bakklykill eða billykill eða stórustafalykill eða breytilykill... nú eða vendihnappur.
Og, já - ég var búin að sjá þennan brandara.
Kreppa...... slaka ....... kreppa ..... slakaGrípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Harðlífi? Glottir eins og fífl
Ég hef ekki heyrt né séð þennan Bússbrandara. En hann er ekkert sérlega fyndinn heldur.
-Einstæð móðir kemur inn til læknis síns alveg brjáluð og segist vanta einhverja lausn því börnin hennar eru að gera hana brjálaða. Læknirinn spyr hvort hún hafi enga stjórn en hún svarar honum fullum hálsi að það þýði ekkert að reyna, þau hlýði engu. Hún er orðin svo reið og leið á þessu að hún gæti hugsað sér að murka kvikindin. Læknirinn lætur hana fá einhver lyf við þessu og hún fer við svo búið.
Einhverjum vikum seinna kemur hún aftur og segir:
"Hææææææ..."
-"Sæl vertu, hvað segirðu gott?"
"Þa bara aaaaalllllt geeeegt..."
-"Jæja? Og hvernig gengur með börnin?
"Hverjum er ekki drullusama?"
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Gríðarlega fyndinn.
Þó brandarinn sé á ensku þá er einn íslendingur í honum, það hlýtur að vera plús.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Gríðarlega fyndinn.
Ég þakka pent.