Komið þið sæl hér í netheimum
Ég er hér algjör nýgræðingur er ekki eitthvað sem ykkur langar að segja við mig.
Ég hef heyrt hér sé aðal sportið að fara illa með nýliða.
Med venlig hilsen
Pseudo
Ég hef heyrt hér sé aðal sportið að fara illa með nýliða.
Nær í tjöruna og fiðrið... nei nei hvaða vitleysa...
Í guðana bænum fáðu þér annað nafn. API
Allt í lagi, hvaða nöfn eru sniðug hér í Baggalútíu ?WILLIS
Klórar sér undir höndum og segjir með nokkuð skrækum rómi "úúúúú AAAAAA úú AAA"
Allt í lagi, hvaða nöfn eru sniðug hér í Baggalútíu ?WILLIS
Andþór er t.d fagurlega stafsett og fer vel í framburði.
Taktlaus? Fer vel í munni.
Villimey er líka sérstaklega fallegt nafn Ljómar upp
Aukasjálfsapaköttur færi þér vel.
Hvenær fær fólk leið á að búa til aukasjálf?
Allt í lagi, hvaða nöfn eru sniðug hér í Baggalútíu ?WILLIS
Klórar sér undir höndum og segjir með nokkuð skrækum rómi "úúúúú AAAAAA úú AAA"
Þú gætir til dæmis kallað þig Aukasjálfið.
Ég get ábyrgst að þetta er ekki aukasjálf. Ég kannast við kauða.
Ég get ábyrgst að þetta er ekki aukasjálf. Ég kannast við kauða.
Úr vinnunni? Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Ég get ábyrgst að þetta er ekki aukasjálf. Ég kannast við kauða.
Ég hef rennt honum í gegnum 'ferlið' og get staðfest orð Andþórs. Hann er ekki aukasjálf.
Það má sjálfsagt venjast þessu ónefni sem þú hefur kosið að kalla þig. En núna væri hentugast fyrir þig og aðra að þú hlunkaðist til að finna nýliðahliðið og biðir þar þolinmóður eftir því að vera velt upp úr tjörunni og fiðrinu. Það er alveg ótrúlegt hversu margir hafa litið út eins og englar eftir þá meðferð...
Hjartanlega sæl og blessuð
En jæja, eigum við að tala um slembiframkallara... einhver til?