— GESTAPÓ —
Áskorun!!
» Gestapó   » Efst á baugi
        1, 2
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 8/10/08 08:33

Kargur mælti:

‹hnussar af alefli› Ég gerði eitt sinn viðamikla úttekt á innviðum Svíþjóðar, og komst að þeirri einföldu niðurstöðu að hún einfaldlega sýgur.

Mikið yrði heimurinn betri ef allir sveitamenn hugsuðu svona um útlönd.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
krossgata 8/10/08 10:07

Ég segi mig úr frændskap við norðurlöndin þrjú sem telja sig vera hin einu norðurlönd og segi mig í frænskap við hitt norðurlandið sem ekki má vera norðurland og flyt bara til Finnlands ef ég yfirgef þessa fögru hlíð.

Kvenskörungur forsetaembættisins. Hlerari við HB. Sporrekjandi ríkisins. Tilnefnd: Mesti laumupúkinn 2007 Gul ‹Drepur tímann› Ef þú getur lesið þetta ertu of nálægt. Laumuhluti: ÞráðurINN fundinn! 10. feb.. og annar 4. maí
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Anna Panna 8/10/08 12:38

Það virðast allir sem ég þekki vera fluttir/að flytja til Danmerkur svo ef ég fer eitthvað þá myndi ég líklegast bara enda þar. En það er nú ekkert langt til Svíþjóðar frá Danmörku, kemur í sama stað niður held ég...

♦ brjálaði demanturinn ♦ valkyrja ♦ elvis ♦ nýliðaskelfir, konan með hinn stimpilinn ♦ blámannagrúppía ♦ fæst nú einnig með háskólagráðu ♦
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 8/10/08 12:46

Selja þeir ekki ennþá malaðan forseta í Svíþjóð?

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 8/10/08 12:48

Kvah... danir eru nú farnir að reyna að nurla saman fyrir fjárhagslegri aðstoð...
http://ekstrabladet.tv/article1067129.ece

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Huxi 8/10/08 21:14

Hvað í þverbitnum þermlinum á ég að gera í Svíþjóð. Þessir dundhjassar seru soddan IKEA dýrkendur og Volvo fetisar að það er búið að drepa niður alla frumlega huxun í því ríki sósíaldemokratískra leiðinda og forpokunar. Það er ekki að ástæðulausu að helstu popptónfroðusmiðir heimsins eru svíar. Svo kunna þeir ekki lengur að smíða gömul hús, og í kennslubók sem ég átti eitt sinn um trésmíðar í Svíþjóð var myndin af hefilbekknum tekin í Danmörku... Það fannst enginn nýr hefilbekkur í Svíþjóð.

Misheppnaður valdaræningi * Efnilegasti nýliði No: 1 * Doktor í fáfræði * Faðir Gestapóa * Frændi Vímusar, Madam Escoffier og Herbjarnar Hafralóns * Forstöðumaður Veðurfarsstofnunar Baggalútíska Heimsveldisins * Forstjóri PRESSECPOL * Grænn
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 8/10/08 21:31

Gísli Eiríkur og Helgi mælti:

Nú er mál að linni . Ég skora á alla með gikt og þá sem eru holgóma og eru haltir og/ eða hómosexúellir og þá sem þjást af kláða bak við eyrunn og alla sem ekki geta sagt R og hina sem eru lofthræddir með flösu og haldnir ofstækiskend eða bara eru skítgamlir og labba niður "Bankastræti " í göngugrindinni sinni með gerfigóm og alt .
Ég skora á ykkur Ellilífeyrisþegar! Málarameistarar og útfararstjórar ! Vændiskonur og pípulagnigarmenn. Öll þið sem elskið lífið og safnið frímerkjum eða bara eruð áhugamenn um áfengismál Flytjið til Svíþjóðar !

Eru álver í Svíþóð? Er fasteignaverðið lágt þar?

        1, 2
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: