Miðað við allt sem á hefur gengið í dag - og miðað við síðasta félagsrit Sigfúsar, getur maður ekki annað en velt því fyrir sér hvort að Sigfús hafi átt þarna einhvern hlut að máli?
Það eru hreinar línur - þetta er allt Sigfúsi að kenna.
Nær í heykvíslina, tjöruna og fiðrið
Kemur hlaupandi inn og bjargar Sigfúsi
Ja ég veit ekki en kannski getur spennan á fjármálamörkuðum verið honum að kenna samt.
Var hann í góðu stuði á verðbréfamörkuðunum?
Mikið er þetta blár og fallegur þráður Ljómar upp
Hann hefði bara átt að framlengja öll útistandandi lán.
Var hann búinn að koma sér í samband við stóru strákana í BNA?
Hann hefur þá örugglega verið búinn að læsa klónum í töluvert fjármagn fyrir nokkru síðan.
Honum verður vonandi ekki stungið inn fyrir þetta!
Er það semsagt Sigfúsi að kenna að hlutabréfin sem ég keypti fyrir helgi fyrir krónur. Eru núna bara eiringavirði.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Klappar fyrir Jarma
Klappar fyrir Jarma
klappar einnig ákaft Þetta kallar maður orðhnyttni, þarna hló ég upphátt.
Rafmagnað andrúmsloftið hefur náttúrulega orðið til þess að það hefur rofað til tengleneti Sigfúsar.
Sigfús var með bölvaðan dónaskap í gleðskapnum um helgina. Grunar oss einhver spenna hafi verið í honum vegna þeirra atburða er allir vita núna um og að hún hafi lýst sjer í þessum dónaskap.