Þetta er Shotgun-leikurinn. Segjum að ég komi keyrandi inn á þráðinn á nýja bílnum mínum, þá segir sá fyrsti sem sér hann Shotgun, næstu tveir segja uzi left eða uzi right og sá fjórði neyðist til að vera kleina. Síðan förum við að rúnta. Á meðan eru næstu bílar fylltir. Á þessum þræði er bannað að vera á stærri heldur en sjömanna bíl og aukafarþegar fara í skottið.
Almenn ákvæði:
Shotgun sér um tónlistina
Kleinan á að vera fyndin
Uzi left reynir við kleinuna
Uzi right segir einhverja skemmtilega sögu
Dræverinn passar að keyra ekki útaf
Og bensínið kostar bara 100 böggur líterinn.
Kemur keyrandi inn á þráðinn á appelsínugulum fimmmanna Bentley
ABBABBABB.... STÖÐVA HÉR! Gætirðu nokkuð sagt mér hvar ég finn fatahreinsun?
Bazooka!
Nei, ertu með piparbrjóstsykur?
ABBABBABB.... STÖÐVA HÉR! Gætirðu nokkuð sagt mér hvar ég finn fatahreinsun?
Þú ferð niður götuna, beygir til hægri á hringtorginu, keyrir síðan áfram í gegnum svona fimm hringtorg og síðan beygiru til vinstri á því sjötta, síðan þegar þú ert kominn fram hjá svona þrem hringtorgum þá ættiru að sjá það þér á hægri hönd. Þetta er við hliðina á Aktu Taktu. Á ég ekki bara að skutla þér? Ég er hvort eð er að fara á Aktu Taktu að pikka upp gellur!
Bazooka!
Á þakið með þig!
Nei sko... afmælisblað... 40 ára stúdentar frá MK... blaðið heitir MK40
Stekkur upp á þak og miðar sprengivörpunni á Ívar
Öskrar Ertu gangandi vegfarandi eða farþegi?
Ívar, komdu bara inní bíl. Við erum að fara að pikka upp gellz og okkur vantar DJ!
Æfir hvað skal segja við gellzurnar
"Ég er ekkert með minnimáttarkennd sko - þessi sprengivarpa var bara hendi næst ... eða þar næst - hendi næst var auðvitað stykkið á mér - viltu sjá"
Ljúft. Ég nenni ekki að bíða lengur eftir Ívari! Setur á The Boys Are Back In Town og brunar yfir allar hraðahindranirnar á 160 og beint á Aktu Taktu
Við verðum að finna bauvið - öflugri gellz segull finnst eigi í Gestapóleikanum
Já maður, ég sendi honum SMS. En svona á meðan við erum að bíða. Viltu ekki sjá nýja Vatnskassann? Við erum sko að tala hérna um Turbo WaterBox 3000 maskínuna. Fékk þetta sent frá Þýskalandi, þeir kunn'etta sko! Hvernig líst þér á litinn? Opnar húddið og sýnir Hórasi neongrænan vatnskassan
Vóóó...speisað í tætlur
Það er meir að segja algert klikk vindskeið á kassanum
Sætisólarnar fullkomna svo heildar lúkkið - við skorum grimmt á þessu
Hvað segiði vopn? dregur fram forláta eldvörpu Napalm einhver?
ÓÓÓÓJÁ! En heyrðu, ég er að spá í að beila. Engar gellur hérna núna. Finnum einhverjar gourmet skinkur á morgun maður! Brunar heim og leggur í þrjú stæði
Kemur út af klósettinu og lítur í kringum sig undrandi
Hvar er bíllinn, gaur?
Og hvar er gaurinn með bílinn?
Sest með sprengivörpuna á gangstéttina
Þetta verður allt í lagi Dísa mín - það kemur einhver, það kemur alltaf einhver
Shotgun.
Réttu mér svo landabrúsann.