Sá braghendu skrifaða upp á vegg í skólanum.
Hvað með þig?
Sléttujárnið mitt sprakk.
Ég hitti vin minn sem ég hélt að væri fluttur til Lundúna.
Ég fékk heiftarlega í magann og kastaði upp.
Ég fékk heiftarlega í magann og kastaði upp.
Sonur minn fékk heiftarlega í magann og kastaði upp yfir mig alla.
Alltaf kemst maður að nýjum tengingum milli Gestapóa ...
Já, og það furðulegasta sem kom fyrir mig í dag var einmitt þegar ég gerði ofangreinda uppgötvun.
Ég fékk svar úr furðulegustu átt.
Ég yrði rekin héðan út ef ég mundi segja það.. em, ég tek áhættuna. Ég grenjaði yfir væmnasta og óþarfasta sjónvarpsþætti í sögu sjónvarpsins. þurkar tárin
Sléttujárnið mitt sprakk.
Þetta er mjög grunsamlegt. Augljóslega hryðjuverkaárás óvina ríkisins, sambærileg við árásina sem gerð var á örbylgjuofn Herbjörns vorið 2004.
Sléttujárnið mitt sprakk.
Þetta er mjög grunsamlegt. Augljóslega hryðjuverkaárás óvina ríkisins, sambærileg við árásina sem gerð var á örbylgjuofn Herbjörns vorið 2004.
Þetta er bæði hræðilegt og grunsamlegt. Ég vona að Anna Panna þurfi ekki í kjölfar þessarar árásar að upplifa sömu martraðir og ég hef mátt þola allar nætur síðan reynt var að granda mér með sprengjunni í örbylgjuofninum.
Ég komst að því að það er einhver búinn að komast að einu af þeim fjölmörgu leyndarmálum sem ég hélt að væru endanlega grafin og horfin. http://baggalúti.is/gestapo/viewtopic.php?p=872214#872214
Sléttujárnið mitt sprakk.
Þetta er mjög grunsamlegt. Augljóslega hryðjuverkaárás óvina ríkisins, sambærileg við árásina sem gerð var á örbylgjuofn Herbjörns vorið 2004.
Einmitt það sem ég hélt, enda mun rökréttari skýring en að snúran hafi verið orðin svona léleg... Rakhnífur Occams hvað?!
Sléttujárnið mitt sprakk.
Þetta er mjög grunsamlegt. Augljóslega hryðjuverkaárás óvina ríkisins, sambærileg við árásina sem gerð var á örbylgjuofn Herbjörns vorið 2004.
Þetta er bæði hræðilegt og grunsamlegt. Ég vona að Anna Panna þurfi ekki í kjölfar þessarar árásar að upplifa sömu martraðir og ég hef mátt þola allar nætur síðan reynt var að granda mér með sprengjunni í örbylgjuofninum.
Almáttugur, hræðilegt er að heyra þetta. Var þér virkilega ekki boðin áfallahjálp? Ég held að við verðum að krefjast þess að heilbrigðs- ja eða óheilbrigðisráðherra komi strax á fót áfallastreituröskunarteymi með sérhæfingu í hryðjuverkafórnarlömbum fyrir okkur.
Vissulega er ekki langt liðið á daginn em það furðulegasta hingað til er að ég fékk óvænt frí í vinnunni í dag. Sem var gaman Stekkur hæð sína
Ég var að fá tilkynningu um það í tölvupósti að ég hefði unnið í lottói!
Og ég spilaði ekki einu sinni með.
En þessir peningar munu svo sannarlega koma sér vel!
Vakna við draum þar sem ég var allt of sein í vinnuna og vakna svo þegar klukkan var fimm mínútum yfir tíman sem ég ætlaði mér að vakna...
Ég komst að því að manneskja sem ég þekki þekkir margt af uppáhaldstónlistarfólkinu mínu og aðra ekki eins uppáhalds en samt hljómsveitir sem ég ber mikla virðingu fyrir. Og ég er svo mikil gelgja að mér finnst það geggjað kúl!
Ég fór í ríkið að undirbúa leitirnar og mér til mikillar undrunar var ekkert ákavíti til þar. hnussar