Til hamigju Litla! Gangi þér vel.
Það furðulegasta sem kom fyrir mig í dag er að detta um Litla laufblaðið hér á Gestapó og komast því að það er að verða móðir.
Til hamingju, Laufa litla.
Furðulega frábært! Til hamingju Litla Laufblað.
Það búa þrjár litlar skaðræðisskepnur heima hjá mér þessa dagana. Margir þekkja þessar skaðræðisskepnur betur sem litla krúttlega kettlinga, en ég er með sönnun fyrir því að það er lygin ein.
Þeir eru búnir að stofna gengi sem heitir: Hrútaberið fær aldrei að sofa út!
Nr 1 beit í stórutá Bersins með áfergju á meðan Nr 2 ákvað að læri væru skemmtilegir boxpúðar. Hrútaberið rankaði aðeins við sér við þann ósið hjá skepnunum. En hélt samt áfram að blunda. Það var ekki fyrr en Nr. 3 ákvað að príla upp á kodda Hrútabersins og spræna framan í það að þeirra verkefni var lokið, Hrútaberið vaknaði og það fyrir hádegi !
Þetta er lítið. Í Efergisistan eru almannavarnalúðrar þeyttir samfleytt í fimmtán mínútur frá klukkan sjö á hverjum morgni, og knúnir af konunglegu rafurmagni.
Ég svæfi það af mér. En hland í fés er óásættanlegt ástand !
Ég heyrði innfæddan borgnesing tala um meint hugvit þar á bæ. Hristir hausinn
Ég var að lesa nokkur sorglegustu innlegg á gestapó á þessum vælukjóaþræði sem þetta er orðið.
"mímímí, lítill kisi pissaði á mig" "Mímímí Nágranninn er með háværa vekjaraklukku" "Mímímí einhver bóndi er snjallari en ég"
Sest í sófann með pípu
Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn leyfði mér að sofa í 7 klukkustundir... meira en lítið furðulegt!
Ég fékk einhver dularfull skilaboð frá Óvinum ríkisins. Þau hljómuðu einhvernveginn svona
Ура, ура!! Приближается теплая погода.!!
Нужны новые впечатления. Наш теплоход к Вашим услугам.
Лучшее меню!
БАНКЕТЫ до 40 персон.
От капитана - бочка пива!
Приезжайте! Вам у нас понравится!
Обращайтесь к нам: 8-9I6-799`21~88 Виктор.
Vér vöknum sem rauðskinni en göngum til náða sem blámaður. Já, heimamaður! Hver er blámaðurinn minn?
Ég vaknapði upp við draum sem samanstóð af atriðinu í myndinni Abyss, þar sem gaurinn andar að sér vökvanum, fóbíu minni við að festast á þröngum stöðum og morðóðum páfagaukum...
Skráir sig á lokaða deild.
Lenti í slag við ungling sem er þó köttur. Ég var þó hálf sofandi eða hálf vakandi, en hann flúði morgunfýluna og ég vann.
Ég vaknapði upp við draum sem samanstóð af atriðinu í myndinni Abyss, þar sem gaurinn andar að sér vökvanum, fóbíu minni við að festast á þröngum stöðum og morðóðum páfagaukum...
Skráir sig á lokaða deild.
Ég var einmitt að horfa á þessa mynd í allra fyrsta skipti fyrir ekkert það löngu. Magnað.
Ég borðaði grillaðan rauðmaga og hann var alveg ótrúlega góður á bragðið!
Núrgis þvoði á mér lappirnar.