Kannast einhver við háttatalshestinn?
Þar er byrjað á því að yrkja ferskeitt um hest eftir háttatali Sveinbjörns sem einnig má finna á heimasíðunni rimur.is (undirsíða háttatal). Sá fyrsti yrkir eftir hætti 1, sá næsti tekur hátt 2 og svo koll af kolli. Ef menn yrkja ekki með réttum hætti, þá má stökkva yfir þá.
Háttur 1 - Ferskeytt
Hrossið mitt er magurt æ
meyrir jaxlar bitnir.
Mér það þykir hálfgert hræ
hófar alltof slitnir.
Næst: Háttur 2 - Frumframhent
Skeiðar reiðar Blesi býsn,
býr í honum þorið;
hesta mesta hefur fýsn
hart að taka sporið.
Næst á dagskrá: #3 - Frumsamframhent
Hrossabossar bylta þér
blauða fylliraftinn.
Hnossakoss gaf heiðin mér
heldur fast á kjaftinn.
Næst er þá: #4 -Framhent
Syngur yngissveinn um það:
Sest í besta hnakkinn,
brokkar Sokki brátt af stað,
beinn sem teinn er krakkinn.
Næst : #5 Víxlframhent.
Hestur besti beint af stað
brokkar,lokkur fagur.
En mesta pest er í því að
okkar Sokki'er magur.
Næst: Alhent
Færleiks nær ei fjötrað hvöt
for og torfært hauður,
grundin undir gnötrar flöt
er greiður skeiðar Rauður
Næst: #7 Síðframhent.
Í götu klárinn fimleg för
fótum skjótum vefur.
Með hlaupum sínum hávær svör
heiðaleiðum gefur.
Næst: #8, Síðsamframhent.
Þegar rennur Rauður minn
rót á grjótið kemur,
veslings foldu fákurinn
fótum skjótum lemur.
Næst: #9 Víxslalhent (Fagrislagur)
Reiðin greiða, grönn hjóst hvönn
gárar ljárinn svörðu.
Sveið og freyðir fönn við tönn
frár fór klár um jörðu.
Næst # 10 Frumbakhent
Hljóp hún langan léttan sprett,
lék um tún og grundir,
greitt tók sporið Gletta nett,
glumdu steinar undir.
-----------
Næst: Síðbakhent #11
l
Tók við hesti telpa hér,
tignum, háum, gráum.
Ganga fjóra, glaður er
glóð í skjáum bláum.
Næst: #12 Bakhent
Dvergmálsháttur
Stoltur hnakkinn stíg ég í
á stærðar mar mér snara.
Til brottreiðar mig bý á ný
burtu þar vil fara.
Næst: #13, Frumsamframhent, síðbakhent.
Hestur bestur Hrímnir minn,
höfuð reisti, þeysti.
Undir grund nú greyið finn,
grafinn neisti hreysti.
Næst: #14 Frumsamframhent, síðbakhent
Hvussi..13 átti að vera frumframhent..en Krossa reddaði því ( held ég ).
Hrossið Blossi, heldur ljótt
hefur skrítin lýti.
Oss með hossast (alltof fljótt)
aulann skýt í flýti.
Næst á dagskrá:15
Hályklað, bakhent
Fagriháttur
Meyjan ríður meri hér
meðfram fjallahjalla.
Freyjan baki ber nú fer
blíðkar karla alla.
Næst: 16 Frumframhent, síðframsneitt
Dyrum fyrir sunnan sest
sól við dalinn langa.
Bæði mæðir mann og hest
mikil jökulganga.
Næst: #17, Frumframsneitt
Fetar latur lungur grár,
lúinn eftir túrinn.
Gleður hlaðið heima klár
hlýr nú bíður skúrinn.
Næst: 18. framsneitt
Öflug stífla fljótt mig fann
fjandsöm reyndi að spilla.
Synd er andinn svíkur mann
sárið grær þá illa.
Næst: #19, Alsneitt