Mikið er það annars skemmtileg tilbreyting að fjölmiðlar skuli vera fullir af frjettum af einhverju svona í staðinn fyrir t.d. frjettir af Paris Hilton eða Britney Spears. Þetta er nefnilega miklu meira spennandi - þó oss gruni reyndar að óþægilega margir sjeu ósammála oss um það Starir þegjandi út í loftið.
Engar áhyggjur, f´rettir af síðustu klósettferðum Britníar og Parísar koma aftur í næstu viku.
Engar áhyggjur, f´rettir af síðustu klósettferðum Britníar og Parísar koma aftur í næstu viku.
Svo maður tali nú ekki um Lindsei-sei Lohan
En, nú munu svissneskir pípulagningamenn, sjá fram á samdrátt í starfsgreininni, sökum verkefnaleysis æi hvað er maður að tala um þetta
En, það er samt eitthvað hrollvekjandi við róteindir sem rekast saman á ljóshraða og allir brjáluðu vísindamennirnir er bara svona "að tékka á hvað gerist"
Og ég sem á eftir að koma til Færeyja, skoða Mónu Lísu og lesa Moby Dick
Umræðurnar á hlekkjuðum vef eru ansi merkilegar og segja ef til vill margt um raunheima þjóðfélagið
Synd þykir mér það þegar spurningar fréttamanna í sjónvarpinu byggjast á vísinda skáldsögum
Tilraunir af þessu tagi hafa verið í gangi í að minnsta kosti 2 áratugi - það eina sem er öðruvísi núna eru öflugri mælitæki en áður hafa þekkst
Eins og Jarmi benti á þá er heimsendir ekki fyrr en 2012
Þetta vita allir heilvita menn og konur
Smá upprifjun í eðlisfræði: (Ritað eftir minni). Ef þú tekur svona þokkalega stórt sandkorn (ca. 1,5 mm í þvermál) og stækkar það upp í stærð jarðar þá verður vetnisatóm sem stækkað er í sömu hlutföllum komið upp í stærð áðurnefnds sandkorns. Róteindin er svo miklu minni, (hlutföll milli róteindar og vetnisatóms eru u.þ.b. Róteind = tennisbolti, vetnisatóm = Laugardalsvöllurinn).
Aflið sem öflugustu eindir sem skell á á jörðinni utan úr geimnum eru hlaðnar, er áætlað svipað og orkan sem tennisbolti verður fyrir í þokkalegri uppgjöf. Það er vissulega gífurleg orka að ein róteind geti verið hlaðin svo mikilli orku, samanber stæraðrhlutföllin sem ég nefndi áðan, og þetta er miklu meiri orka heldur en eindirnar í CERN ná að hlaðast áður en þær verða látnar rekast saman. Og fyrst að þessar geimgeislaeindir ná ekki að mynda svarthol þá er nú ekki mikiil hætta á að þeim hjá Cern takist það.
Svo má bæta því við að ef þeim tækist að ná að mynda róteindarsvarthol, þá er útreiknaður líftími þess 10 x -1024 sek.
Umræðurnar á hlekkjuðum vef eru ansi merkilegar og segja ef til vill margt um raunheima þjóðfélagið
Umræður þessar eru fyrst og fremst áfellisdómur yfir alþýðumenntun. Niður með lestrarkennslu! Niður með grunnskóla!
http://www.kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=459&id=6622
Hér er smá upphitunarefni... held þetta sé uppáhalds myndbrotið mitt á netinu.
Gleðifréttir (sem þó komu sér illa fyrir mig) voru að berast í þessu - áhugi netverja á hraðlinum er víst svo mikill að síðan hrundi tímabundið í morgun þegar setja átti tækið af stað. Síðan er nú komin upp en vefmyndavélin liggur enn þá niðri.
Hins vegar er þetta bara gangsetning á draslinu - áreksturinn verður víst ekki nærri því strax.
Tekur ekki einhverja mánuði fá gögn úr fyrirbærinu.
Ég sé að þetta er að verða að veruleika, það er óflýjanlegt að heimurinn muni enda á næstu vikum...
Ég sá alltaf fyrir mér að heimsendir yrði þannig að allir myndu drepast, nema hugsanlega ég og nokkrir aðrir (Gestapóar t.d.)... mér líst illa á heimsendir þar sem heimurinn endar algjörlega... ekki alveg eins gott - svona frá mínum bæjardyrum séð...
Er ekki möguleiki á að búa til sýndarveruleika sem endar alldrei... hægt að hlaða okkur endanlega niður á Gestapó Setur Þarfagreinir í málið og t.d. nota tímavélina hans Vlads til að færa okkur reglulega aftur í tímann svo við getum bara byrjað upp á nýtt... Sér fyrir sér endalausa Gestapó
Aaaaaargh!! Höfuðborgarsvæðið er að sogast inn í svarthol og leysast upp í öreindir sínar! Hafnarfjörðurinn er farinn, Kópavogurinn er næstur, flýið!! FLÝIIIIIIÐ!!
Haaaaaaaaaarharharharharhar!
Aaaaaargh!! Höfuðborgarsvæðið er að sogast inn í svarthol og leysast upp í öreindir sínar! Hafnarfjörðurinn er farinn, Kópavogurinn er næstur, flýið!! FLÝIIIIIIÐ!!
Haaaaaaaaaarharharharharhar!
Skýtur róteindum á ljóshraða í svartholið, svo annað svarthol myndast sem gleypir hið fyrra og gleypist svo af sjálfu sér. Bjargar þar með heiminum og verður hetja.

Er síðan krossfestur dáinn og grafinn til þess eins að hægt sé að gera grín að honum 2000 árum seinna.
Einhverjir hérna ættu að vita það að ég er nifteind . Ekkert mun henda okkur nifteindirnar.
Einhverjir hérna ættu að vita það að ég er nifteind . Ekkert mun henda okkur nifteindirnar.
Auðvitað munu nifteindirnar leysast upp í kvarka sína, enginn er óhultur!
Seinna meir munu svo kvarkarnir festast í lyftu og mæta endalokum sínum þar
Þvílíkur harmleikur
Einhverjir hérna ættu að vita það að ég er nifteind . Ekkert mun henda okkur nifteindirnar.
Og heitir félaginn á þér þá 'Higgs'?