Jæja, eru einhverjir hérna inni sem búast við heimsendi á morgun?
Já og ég ætla að vera úti og taka mynd.
Ég les bara ekki nóg af vísindaskáldskap til að trúa þessari vitleysu!
Ohh, heimsendir eina ferðina enn.
Er þetta ekki bara tímavjelin forseta vors?
Ætli þeir fái aldrei kjánahroll yfir sjálfum sér, þessir heimsendaspámenn, þegar spárnar þeirra ganga ekki eftir?
Ætli þeir fái aldrei kjánahroll yfir sjálfum sér, þessir heimsendaspámenn, þegar spárnar þeirra ganga ekki eftir?
Nei nei. Þeir fara bara að bíða eftir næsta heimsendi.
Róttækasta heimsendaspáin sem vjer höfum sjeð er að LHC muni ekki einungis eyða jörðinni heldur öllum alheiminum eins og hann leggur sig. Það á að gerast einhvernveginn þannig að til verði eitthvert fyrirbæri er þenjist út á ljóshraða og gjöreyði öllu sem fyrir verði (og þá ekki bara efni heldur líka tíma og rúmi).
Erum vjer eigi trúaðir á spádóma þessa.
Hinsvegar verður mjög fróðlegt að sjá hvað kemur út úr þessu um uppruna alheimsins, frumkraftana fjóra o.m.fl.
Er þetta ekki bara tímavjelin forseta vors?
Færir Hljegesti sjerlega miklar kóbaltbirgðir
Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir... Heimsendir...
Hleypur inn á þráðinn í mikilli geðshræringu og út aftur

Tekur Skabba í fang sér og róar hann
Iss það gerist ekkert merkilegt.
Svorthol eru svo massamiklir hnettir að ljósið kemst ekki einu sinni frá því, svo mikið er aðdráttaraflið. Hins vegar er hér eitt lítið atóm sem á að kljúfa. Varla smitar það út frá sér einhverri efnasamþjöppun. Held ekki...
Stórskemmtilegasta við þetta allt er spjallþráður á "ónefndri" vefsíðu sem ég verð þó eiginilega að hlekkja hingað; umræðu sem með sanni mætti kalla "svarthol heimskunnar". Ég veit ekki hvernig menntakerfið hefur brugðist þessum vesælu einstaklingum en skilningur þeirra á vísindunum er álíka skilningi nornaveiðara á sautjándu öld.
http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=10775526&advtype=52&page=1
Inn á milli finnst ómetanleg gullkorn eins og "Úff, og ætla þeir bara að taka þann séns sí svona?
Hver er tilgangurinn með þessu? Veit það einhver? Hvað er það frábærasta sem gæti gerst í þessu "verkefni"?? :/"
"sorry hvða ég er heimsk en hvað er hvirfill? :s"
Það er eiginilega óhugnarlegt að þetta lið eigi allt börn.
Annars láta þeir öreindirnar víst ekki rekast saman fyrr en á næsta ári - á morgun láta þeir einungis eindir flakka hring um hraðalinn skildist mér. Það mun sjálfsagt koma heimsendir áður en mbl þýðir frétt tengda vísindum án þess að hún sé morandi í villum.
Merkileg lesning. Einhver þarna var svo feginn að það væri að koma heimsendir því þá slyppi hann að borga reikninginn því hann var svo asssskoti hár.Setur sig í stellingu hugsuðurins
Já og önnur mannvitsblindhæð lagði það til að senda svo mörg kvörtunarbréf til þeirra í CERN að þeir hefðu ekkert annað að gera en að lesa kvörtunarbréf og þyrftu að hætta við tilraunina. Glottir eins og fífl
Annars er þetta með öllu hættulaust - daglega skella öreindir á lofthjúp jarðar með jafnvel mun meiri krafti en í þessari tilraun.
Auðvitað eiga falsmiðlar nokkra sök, þegar þeir setja röfl í örfáum kverúlöntum fram sem lögmætar áhyggjur.
Á móti kemur hins vegar að þeir sem treysta falsmiðlum í blindni, og þá sér í lagi sneplum eins og Dagblaðinu Vísi, eru vitaskuld rakin fífl.
Það kom heimsendir til mín í gær. Hann kom með pizzu...