Lars má kalla Lassa sem og Larrí hér,
en uss, það lengra ekki fer.
Ferlega' ertu fáránlega fitt og kúl.
Varstu að stunda pallapúl?
Púlararnir pæla mest í pottunum
og þurragufuþvottunum.
Þurragufuþvottur gerir þvala húð
hreina eins og hún sé rúð.
Rúðuborg er reisuleg ríki Frans,
eftirlæti andskotans.
Andskotans var iðulega orðað pent
er kotfólk var til kirkju sent.
Sent var mér eitt sendibréf, en sendiráð
faldi, svo ei fékk í bráð.
Bráðalungnabólgu þarf að berjast gegn
svo ekki verði mér um megn.
Megnan fnyk af metangasi mjög ég finn.
Brennir þessu bíllinn minn.
Minni hverfur margra þegar muna þarf
það sem skal nú þeirra starf.
Starfið mitt er stórgallað, já, sturlun ein.
Af því ber ég innanmein.
Meinsemd hann í mannlífinu marga fann
svo upp á krossinn hengdu hann.
Hannibal fékk heilakæfu höfði úr
sem að ennþá söng í dúr.
Dúracellið drifkraft setur draslið í.
Býsna öflugt batterí.
Batteríið brást er átti að bræða snjó,
nú sýnist hált hjá Sollu á Glól
Glóperunnar geislaflóð á glasið skín.
Viltu brandí, væna mín?
Mína vildi meir'af því mæla ekki taki.
Bjórinn teygar, á því enginn slaki
Mína vildi meiri bjór og munntóbak.
Ölvað* náð'í! Niður slak!
*Öl-vaður: kaðall fyrir bjórkippur.
Slakur reyndi slúbertinn í slómó-gír
að maka sig við möppudýr.