Hér á að ræða allt sem viðkemur Liverpool.
Manjúmönnum er bannaður aðgangur enda verður fólk að hafa sál til að vera hér.
Eða eins og skáldið sagði
Liverpool er lið sem vinnur alla.
En vondir eru manjú menn,
myglaðir með skalla.
Liver hvað ? Er þetta útlenska ?
Klórar sér í höfðinu
Ekki er þetta tuðrusparkið engilsaxneska ?
Út með það héðan. Gestapó er ekki vettvangur fyrir heilalaust tuðrspark.
Hefur allt á hornum sér, strunsar inní eldhús og skellir hringhurðinni á eftir sér
gerri and the pacemakers eru einmitt frá liferpool
það var nú fín hljómsveit
Það er af sem áður var. Hristir höfuðið og röltir yfir á Emblu.
ÉG er alveg sammála með manjú, en þessi ansvítans lifrapollur má fara til fjandans. Arsenal mun éta þessa gæs sem er á lifrapollsmerkinu með húð og hári og sömuleiðis restina af deildinni.
Doninn hefur talað. Þessi svokölluðu félagasamtök eru dæmd til að deyja út og kafna í fæðingu.
Ég held með Liverpool og hef gert lengi Enda er ég með Caragher á Kaffbi Blút
Svo ég er með
Rólegur kallinn, þú ert ekki einu sinni kominn með ríkisborgararétt, hvað þá rétt til stunda svona andfélagslegar samkundur. Já, og punkt í lok setninga!
Hvaða andskotans ónáttúra er það að vera sínkt og heilagt gónandi á einhvera oflaunaða apaketti sparka uppblásnum svínsmaga á milli sín? Getið þið ekki farið með þetta blæti ykkar eitthvert annað, og látið vera að troða þessum barbarisma í andlitið á heiðvirðu fólki?
Vjer minnum á umræður í Vísindaaakdemíu Baggalúts þar sem fram kemur með skýrum hætti að öll svona starfsemi eins og þráður þessi snýst um flýtir fyrir dauða alheimsins. Því ætti þegar í stað að banna alla lifrarpolla (og margt fleira).
Grútartjörn er grá og ljót
glæpamenn þar harka,
en borgar- kunna -búar fót-
bolta vel að sparka.
ÉG er alveg sammála með manjú, en þessi ansvítans lifrapollur má fara til fjandans. Arsenal mun éta þessa gæs sem er á lifrapollsmerkinu með húð og hári og sömuleiðis restina af deildinni.
Heyr heyr!
Arsenal mun eiginlega éta allt sem að þeirra kjafti kemur þetta tímabilið.