Ritarinn gæti verið Jóhannes af Góðborg.
Froskurinn er með þetta, og Fergesji á væntanlega við Johann Wolfgang von Goethe. Í fyrstu línunni hafði ég reyndar hugsað mér Jóhann Sigurjónsson, en það skiptir kannski ekki höfuðmáli.
Fergesji átti raunar við Johannes Gutenberg.
Ein lauflétt til að lífga upp á þráðinn:
-------------------------------------------
Umræðunni yfir gín.
Ýmsar telja manninn svín.
Eflir drama frú hans fín.
Fann upp malt og appelsín.
Umræðunni yfir gín. Egill sem á Brimborg.
Ýmsar telja manninn svín. ?
Eflir drama frú hans fín. Egill Ólafsson hljómÞurs.
Fann upp malt og appelsín. Egill Skallagrímsson.
Er sá hinn fyrsti eigi fremur Silfur-Egill Helgason?
Myndi númer tvö þá kannski vera apakötturinn Gilsenegger? Heitir hann ekki Egill, eða hvað?
Rosalega yfirsást mér þessir tveir umræddu menn. Klórar súg í höfuðpaurnum
Vafðist honum tunga um tönn.
Takkavillan setti í bönn.
Sjóði gat hann sameinað.
Sá hann jörð frá himinstað.
Vafðist honum tunga um tönn. - öh
Takkavillan setti í bönn. - Mér datt Bjagni Hagðag í hug.
Sjóði gat hann sameinað. - Bjarni Ármannsson fjármálagúru og fyrrverandi bankastjóri.
Sá hann jörð frá himinstað. - Bjarni Tryggvason geimfari.
Hvernig getur sá fyrsti vafist fyrir þér fyrst þú ert með alla hina?
Hvernig á ég að svara því havð vefst fyrir mér....
Erum við að ræða um Bjarna Ben yngri, var hann ekki í fjármálavafningunum?
Ja, þú svaraðir því allaveganna rétt. Ljómar upp
Á ljóðaþingi laminn var.
Í landshorn nyrðra tók sér far.
Menntun stýrði merkis-bur.
Mynda(r)kall sem skorti „ur“.
Á ljóðaþingi laminn var. - Sigmundur Ernir Rúnarsson
Í landshorn nyrðra tók sér far. - Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Menntun stýrði merkis-bur. - Veit ekki
Mynda(r)kall sem skorti „ur“. Sigmund, skopmyndateiknari í Mogganum.
Ég myndi ætla að þriðji Simminn sé Sigmundur Guðbjarnason, fyrrverandi háskólarektor.
Þetta var flott gáta.
Þessi er vísast í léttara lagi:
Talíban með odd og egg.
Arabískan túlkar segg.
Kappinn frægur flest um er.
Friðrik löngum skemmtir sér (og mér) (og þér).