— GESTAPÓ —
Fjórmenningagátur
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3, 4 ... 66, 67, 68  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 3/9/08 15:55

Þá minni ég á þessa. Tveir eru lífs, tveir liðnir.

hlewagastiR mælti:

Jakob hét hann, Ólafs arfi.
Árni, sonur Gunnars þar.
Landnám hafði hann að starfi.
Hirti um bensínstöðvarnar.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 3/9/08 20:58

Þessi ekur eins og ljón með einni hendi.
Í tennis er hann ansi góður.
Á Íslandi varð byssufóðyr

eg svindla reyndar aðeins

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 3/9/08 21:02

Þetta eru nú bara þremenningar.

Þessi ekur eins og ljón með einni hendi. - Bjössi (Björn) á mjólkurbílnum
Í tennis er hann ansi góður. - Björn Borg
Á Íslandi varð byssufóður - ÍsBjörn

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 3/9/08 21:02

Þeir leyfast

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 3/9/08 21:07

Gretzky mælti:

Þeir leyfast

Það var alla vega gaman að geta leyst þetta svona fljótt. ‹Glottir eins og fífl›

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Golíat 4/9/08 08:23

Þarfagreinir mælti:

Jamm. Þá er gátan fullleyst.

En hvernig væri að íslenska svörin? Ég reyndar átta mig á Jeltsín, en svarið við línu fjögur er mér enn hulið.

Fyrrverandi geimferða- og fjarskiptaráðherra, forðagæslumaður Bagglútíska heimsveldisins og keisaralegur hundahreinsunarmaður.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 4/9/08 09:59

Það mun vera Boris Pasternak, sem reit um Doktor Sívagó.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 8/9/08 07:40

Óteljandi á hann nöfn.
Eitt sinn söng um völl sem grær.
Í lygnum sjó hann leggst að höfn.
Landsins fréttum stýra fær.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Álfelgur 8/9/08 10:52

Óteljandi á hann nöfn. - Óðinn ásagoð
Eitt sinn söng um völl sem grær. - Óðinn Valdimarsson
Í lygnum sjó hann leggst að höfn. - Óðinn varðskip
Landsins fréttum stýra fær. - Óðinn?

Mu!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 8/9/08 13:38

hlewagastiR mælti:

Þá minni ég á þessa. Tveir eru lífs, tveir liðnir.

hlewagastiR mælti:

Jakob hét hann, Ólafs arfi.
Árni, sonur Gunnars þar.
Landnám hafði hann að starfi.
Hirti um bensínstöðvarnar.

Þá minni ég í þrðja sinn á þessa. Hún er líklega of snúin því að enginn hefur einusinni reynt að svara henni.
Vísbendingar:
1. lína: Skagfirskur hagyrðingur. Ekki dauður.
2. lína: Löngu dauður útlendingur.
3. lína: Íslenskur landnámsmaður. Þar af leiðandi löngu dauður.
4. lína: Íslendingur. Ekki dauður.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 9/9/08 06:47

Álfelgur mælti:

Óteljandi á hann nöfn. - Óðinn ásagoð
Eitt sinn söng um völl sem grær. - Óðinn Valdimarsson
Í lygnum sjó hann leggst að höfn. - Óðinn varðskip
Landsins fréttum stýra fær. - Óðinn?

Rétt, í síðustu línunni átti ég nú við Óðinn Jónsson, fréttastjóra Rúv.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 10/9/08 09:21

hlewagastiR mælti:

hlewagastiR mælti:

Þá minni ég á þessa. Tveir eru lífs, tveir liðnir.

hlewagastiR mælti:

Jakob hét hann, Ólafs arfi.
Árni, sonur Gunnars þar.
Landnám hafði hann að starfi.
Hirti um bensínstöðvarnar.

Þá minni ég í þrðja sinn á þessa. Hún er líklega of snúin því að enginn hefur einusinni reynt að svara henni.
Vísbendingar:
1. lína: Skagfirskur hagyrðingur. Ekki dauður.
2. lína: Löngu dauður útlendingur.
3. lína: Íslenskur landnámsmaður. Þar af leiðandi löngu dauður.
4. lína: Íslendingur. Ekki dauður.

Ég vil helst ekki upplýsa um heimsku mína... en ég vil síður að þessi þráður haldi ekki dampi og því vil ég spyrja hvort síðasta línan vísi mögulega í þættina Næturvaktina og Dagvaktina?

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 10/9/08 11:16

Nei ekki snýst það um vaktirnar, dags eða nætur. Annars eyðilagði ég gátuna með því að víxla vísbendinunum fyrir fyrstu og aðra línu. Því er ekkert til ráða annað en að skýra hana eins og hún átti að vera:

Jakob hét hann, Ólafs arfi. - Svíar voru heiðnir á 11. öld og neituðu að krýna son Ólafs nema hann skipti út biblíunafni sínu. Þeir kölluðu hann Önund.
Árni, sonur Gunnars þar. - Þetta er skagfirski hagyrðingurinn. Hann hefur ort undir dulnefninu Önundur illmálgi.
Landnám hafði hann að starfi. - Önundur tréfótur Ófeigsson nam Trékyllisvík.
Hirti um bensínstöðvarnar. - Önundur Ásgeirsson var lengi forstjóri Olís

Þá slengi ég inn annarri fjórsu. Þessi er með minniháttar fráviki sem vonandi kemur ekki að sök. Ég held að þessi sé miklu betri en sú síðasta.

Ríkis- vill hann -rekstur hreinn.
Rosalegust innköst tók
Talsvert margt en telst þó einn.
Tíunda hann ljónið skók.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 10/9/08 11:36

Marteinn

Ríkis- vill hann -rekstur hreinn. - Marteinn Mosdal
Rosalegust innköst tók - Marteinn Geirsson
Talsvert margt en telst þó einn.
Tíunda hann ljónið skók. - Ekki klár á þessum

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 10/9/08 11:41

Er þá ekki sá síðasti Marteinn Lúter sem skók Katólsku kyrkjuna.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 10/9/08 13:51

Hér er mín frumraun í þessum geira:

Frekar slétt og fellt hans nef
flakkaði um í desember
úti lá en laus við kvef
langferðabílstjóra faðir er.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 10/9/08 13:57

Gríslingur fann þrjá rétta Marteina og Billi botnaði svarið. Tíunda ljónið er vitanlega Leó X, páfinn sem Lúther böggaði.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 10/9/08 14:12

Þetta er líklega sjóðandi vitlaust - en það getur verið gaman að rökstyðja bullið:

Frekar slétt og fellt hans nef - Í bókinni Peð á plánetunni Jörð eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur segir frá Jónasi sem er með nef sem er tveimur númerum of stórt en minnkar eftir því sem Magga kynnist honum betur og er því í lokin frekar slétt og fellt.
minnkar og minnkar því betur sem Magga Stína kynnist honum.
flakkaði um í desember - Hvalurinn gleypti Jónas frá Níneve um hávetur.
úti lá en laus við kvef - Enda skal ég úti liggja, engin vættur grandar mér - orti Jónas Hall
langferðabílstjóra faðir er. - Jónas faðir Teits.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
        1, 2, 3, 4 ... 66, 67, 68  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: