Línbergur með 3/4 og Hlégestur bætti við þessum 1/4 sem vantaði. ;)
*
Væntanlega óþarfi að skilgreina svar Mjása frekar, svo augljós er Ómarsgátan, en þetta munu vera þeir Mohammad Omar, Sharif, Ragnarsson og Friðrik Ómar.
*
Og fyrst ég er nú kominn í stuð eftir áralanga fjarveru:
Stelur öllum steinum hann.
Strýhærður skóp blaðamann.
Í hausinn fékk hann eitt sinn egg.
Ætlar nú á topp – með skegg.
Árni Johnsen
Veit ekkert um þennan, en Árni Finnsson er strýhærður.
Árni Þór
Árni Páll
Strýhærður er Árni Þórarinsson, höfundur bókanna um Einar blaðamann.
Frábærar gátur svona allt í einu.
Þið neglduð þetta í sameiningu, Útvarpsstjóri og Heimskautafroskur.
Þetta er alltof létt. Ein í viðbót:
Leikglöð dóttir listarýnis.
Les hún fréttir öllum stundum.
Móðir lands – var mjög til sýnis.
Moðreyksblandar hjal á fundum.
Væntanlega óþarfi að skilgreina svar Mjása frekar, svo augljós er Ómarsgátan, en þetta munu vera þeir Mohammad Omar, Sharif, Ragnarsson og Friðrik Ómar.
Jamm, það er skemmtilegra að rökstyðja svarið þó að gátan sé augljósar. Og víst er þetta allt satt og rétt.
Þið neglduð þetta í sameiningu, Útvarpsstjóri og Heimskautafroskur.
Þetta er alltof létt. Ein í viðbót:
Leikglöð dóttir listarýnis.
Les hún fréttir öllum stundum.
Móðir lands – var mjög til sýnis.
Moðreyksblandar hjal á fundum.
Linda Ásgeirsdóttir?
Linda Blöndal?
Linda Pé?
Síðasta væri þá kannski Linda Rós Michaelsdóttir, meðlimur í Landsdómi og rektor MR?
Þessi er kannski þung - en þið getið jú allt, er það ekki?
Messíasaraðdáandi meiriháttar var hann.
Miðaður við soninn var hann herforingi rýr.
Arpeggíur speglaðar á nótnaborðið bar hann.
Hjá barnabarnabarnabarnabarni sínu býr.
Messíasaraðdáandi meiriháttar var hann. Páll postuli hét Sál áður en hann gerðist messíasaraðdáandi.
Miðaður við soninn var hann herforingi rýr. Sál felldi sín þúsund en Davíð sín tíuþúsund.
Arpeggíur speglaðar á nótnaborðið bar hann. ?
Hjá barnabarnabarnabarnabarni sínu býr. Sálin?
Virðingarverð tilraun en því miður ekki rétt...
Skot út í loftið: Händel?
Messíasaraðdáandi meiriháttar var hann. - George Frideric Händel samdi jólaóratóríuna Messías
Miðaður við soninn var hann herforingi rýr. - Bartskerinn Gerog Händel, faðir tónskáldsins
Arpeggíur speglaðar á nótnaborðið bar hann. - Aftur tónlskáldið, býst ég við. Annars er ég heyrnarlaus.
Hjá barnabarnabarnabarnabarni sínu býr. - Ætli einhver afkomandinn hafi ekki ösku hans í krukku, frekar en hauskúpuna uppi á arinhillu.
Síðasta væri þá kannski Linda Rós Michaelsdóttir, meðlimur í Landsdómi og rektor MR?
Getur verið að kona sé orðin rektor þeirrar snobbstofnunar? Er ekkert heilagt?
Nei Hlégestur minn, og nú fyllist ég þórðargleði yfir að sjálfur montrassinn með snilligáfuna nái ekki að ráða þraut þessa... enn sem komið er.
Nei Hlégestur minn, og nú fyllist ég þórðargleði yfir að sjálfur montrassinn með snilligáfuna nái ekki að ráða þraut þessa... enn sem komið er.
Ég var nú svo sem ekkert búinn að reyna.
Ég er ekkert annað en ófullburða amaba í drullupolli á forsögulegum tíma þessarar skítaplánetu.
Messíasaraðdáandi meiriháttar var hann.
Miðaður við soninn var hann herforingi rýr.
Arpeggíur speglaðar á nótnaborðið bar hann.
Hjá barnabarnabarnabarnabarni sínu býr.
Filippus lærisveinn Jesúsar.
Filippus II faðir Alexanders mikla
Einhver Filippus tónskáld? Mér dettur helst í hug John Philip Sousa
Punxutawney Phil hlýtur að fjölga sér ógnarhratt
Væni-Grétar er kominn með nafnið. Seinni línurnar eru þó ekki réttar - nú er bara að finna þá sem vantar. Einnig má geta þess að íslenska nafnmyndin "Filippus" á ekki endilega við um alla.
Væni-Grétar er svo greindur að hann hlýtur að vera með eitthvert syndróm sem skýrir það út.