Ívar notar bláberjasultu í uppvaskið.
Anna er sérhönnuð til neyðarviðbragða í kreppu. Nema á mánudögum.
Tina er eins og kettlingur sem spilar á flöskustút með boga.
Línbergur er sjaldan, en þó allsekki aldrei.
Agnir í slembnu hraðasviði og slembið líkan af iðustreymi og hreyfing agna skv. lögmáli Stokes í slíku iðustreymi.
Meginniðurstaðan er að líkanið er slembið hreyfikerfi með slembið aðdráttarmengi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum á orkuróf iðustreymisins.
Þversnið af nornamjölsögnum (e. lycopodium particles) í iðustreymi sýnir að dreifing agnanna er greinilega ekki jöfn, og í raun er hún ekki ýkja frábrugðin dreifingu agna í slembnu hraðasviði. Þetta fyrirbæri, að agnadreifingin sé fylgin hreyfingum í iðustreyminu, hefur verið nefnt mismununarsamþjöppun (e. preferential concentration), og á sér stað þegar Stokes talan, sem er hlutfallið milli tímafasta agnanna og tímaskala iðustreymisins, er nálægt einum.
Ég skrifaði þetta.
Athyglisvert. Afar athyglisvert. Nú er bara spurningin hvort ÞEIR séu orðnir varir við okkur.
Kiddi notar stundum flugdreka í grend við geislavirkar radísur frá Amman í Jórdaníu
Nermal hefur sést stinga 14 seríóshringjum upp í aðra nösina á sér. Samtímis.
Litur Pós minnir á hávísindalegan hlátur magnesíumhúðaðra krókódíla.
Vladimir telur að dægurlagið vinsæla Jafnvel þó við þekkjumst ekki neitt með Páli Óskari hafi verið ort til sín.
Skoffín hefur eingöngu áhuga á umræðum um skaðabótamál vegna ryðvandamála í þeim tyrknesku fjármálabyggingum sem staðsettar eru neðansjávar.
Fatnað Vladimirs þarf að smyrja einu sinni í viku upp úr ólívuolíu og borðediki til að slá á ofnæmisviðbrögð og koma í veg fyrir spólormasýkingu.
Skoffín setur á hverjum degi eina krónu inn í tiltekið bankahólf í tilteknum banka - og á hverjum sunnudegi tekur hún sjö krónur út úr því.
Ef Þarfi myndi ekki þekkja jólasveininn Kertasníki persónulega myndi Bubbi Morthens borða allar kökurnar í bakaríi Hérastubbs bakara!
Þráðurinn heitir segðu eitthvað furðulegt þess vegna segi ég Hóras en ekki Nótta.
Upprifinn er eins og blanda af súrmjólk og útrunnu dagatali. Það er hvorki hægt að hjóla.
Línbergur er núna á 4. tilverustigi. Breytuvakinn er gulur og skammtastærð 4/33