— GESTAPÓ —
Öfugmæli
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3, 4
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hermundur Frotté 27/2/08 16:44

Roðamaur í rjómabland
rúður pússar, leður.
Hafðu þetta handaband
haltu fast um reður

Hermundur Frotté • ógöfugmannlegur og ósnyrtimenni
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 12/9/08 23:07

Eldurinn kaldi gyljar kú
kýrin tarfinn temur.
tarfurinn kyssti fína frú.
Frúin eldinn lemur.

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 12/9/08 23:10

[skoðaðu nú fyrstu línuna... er hún rétt?]

Sjálfur hef ég sötrað nóg
sungið get ég ekki
Höndlað get ég hálfan plóg
og höndlað brúna flekki

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 13/9/08 22:59


Jafnan bjart er myrkrið mest
magnast upp við sólarljósið.
Gryðung tel ég haltan hest.
Hundar alltaf þrífa fjósið .

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst

lappi mælti:

(13/9/08 22:59)

Bjart er myrkrið jafnan mest,
magnast upp við sólarljósið.
Gryðung tel ég haltan hest.
Hundar alltaf þrífa fjósið .

Elskulegur lappi minn. Ertu nú enn búinn að gleyma hvar stuðlarnir eiga að standa?

Nú ætla ég allravinsamlegast að gefa þér aðvörun: Næst þegar þú lætur frá þér svona rangstuðlað innlegg, þá hendi ég því í ruslið án frekari málalenginga. Sama gildir um innleggið hér að ofan, ef það verður ekki lagað núna mjög fljótlega. Það eru, þráttfyrirallt, takmörk fyrir því hvað við gæzluliðarnir nennum að dusta sama rykkornið oft af sömu hillunni.

Virðingarfyllst,
þinn félagi & kumpán;

- z n ó j -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 14/9/08 01:35

Lúxusbílar leka hlandi
liðugir og hopp
Drekkum núna djús í blandi
og dulkóðum þá popp

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 14/9/08 12:44

Súrt er bragðið sykri af
á sandi hús skal byggja.
Agnarsmátt er Atlantshaf
Ósatt kyrrt má liggja.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 15/9/08 12:07

Björginn háu mala mjöl
margan fuglinn stiggja.
Íslendingum krónan kvöl,
kjurt má satt oft liggja.

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Bu. 15/9/08 16:22

Hestarnir þeir hneggja ei
hundinn sá ég baula.
Sigfinnur hann sagði "Nei"
sá ég gelta kisugrey.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 18/9/08 15:17

Bönkum öllum bjarga má
sagði blásvört eðla.
Ef mættu allir myntu slá
og meika eigin seðla.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 18/9/08 19:23

Í stafsetningu stend ég vel
Stuttur er ég líka
Í hár ég nota hnakka gel
hnetu á ég ríka

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 18/9/08 21:22


Rottur dansa tango tjútt
trúi að köttur gali.
Minkinn allir kalla krútt.
Kálvar þrífa sali.

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 30/10/08 23:14


Rífst við kávinn kötturinn
kastar í bola eggjum.
forljótur með skorpið skinn
skríður hann með veggjum.

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 6/11/08 18:18

Uppi drekkur ekki vín
eins og rekkar þekkja.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leiri 8/11/08 01:59

Uppi drekkur ekki vín
eins og rekkar þekkja.
Þetta hlekkja hrekkju svín
hér við rekkju þekka.

(Ort í orðastað konu).
‹Glottir eins og fífl›

Leiri er gríðarlegt skáldaefni og dr. í íslenskum bókmenntum. Sérgrein hans er bragfræði síðmiðalda. Hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar á stuttri ævi og ítrekað verið nefndur sem mögulegur nóbelverðlaunahafi á komandi árum.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 8/11/08 11:44

Erlend lán nú alla kæta.
Atvinnunni höldum við.
Úrræðin hér enga græta.
Englendingar veita lið.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 20/11/08 18:48

Lánin okkar lækka brátt
lán er það í óláni
Landsmenn ekki léku grátt
lánlaus, andlaus, smámenni.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Valþjófur Vídalín 13/12/09 17:10

Gott er að borða brauð með skeið,
bera snjó í opinn eld.
Af ákavíti einni sneið,
upp í mig með járni veld.

Valþjófur Vídalín, Ostameistari.
LOKAÐ
        1, 2, 3, 4
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: