Það pirrar mig þegar ég er í ófélagslyndisstuði og langar helst að húka heima undir sæng en þarf samt að hanga í vinnu vegna anna. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Það pirrar mig þegar ég er í ófélagslyndisstuði og langar helst að húka heima undir sæng en þarf samt að hanga í vinnu vegna anna. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Geturðu þjálfað þessa önnu upp og farið síðan heim undir sæng. Ég sé ekkert til að pirra sig yfir þarna.
En það tekur tííííma að þjálfa fólk upp. Heldur fýlunni til streitu
Það pirrar mig hvað ég er vitlaus.
Það pirrar mig hvað ég er kröftugur í máli á gagnvarpinu. Fólk tekur megnið af því saklausa sem ég segi sem 80.000[kN] árás á persónulegt sjálf sitt... jafnvel þegar ég er ekki einu sinni að beina orðum mínum að því.
Það pirrar mig að prófin mín séu 9. 10. og 11. desember.
Þegar baðherbergið er upptekið í yfir hálftíma og ég þarf að komast á klóið.
... að lesa gamla skólaritgerð eftir sjálfan mig sem ég myndi kolfella fyrir lélegt málfar, herfilega útfærslu og algjöran skort á sjálfstæðri/eðlilegri hugsun.
Hendir öllu slíku strax í ruslið og fer strax út með ruslið
Dæsir strax mæðulega við gluggann og bíður lengi eftir ruslabílnum
Það pirrar mig að ég fæ alltaf SQL Error : 1062 Duplicate entry ... villuna þegar ég reyni að nota Hvað er nýtt?. Þannig hefur það verið frá því í gærkvöldi. Um daginn lenti ég í því sama en það lagaðist þegar nettengingin mín datt út og inn aftur. Það virðist hafa verið helber tilviljun, þar sem núna virkar ekki einu sinni að endurræsa tölvuna eins og hún leggur sig. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Prófaðu að skola út smákökum og tímabundnum skrám... virkar hjá mér og Eldrefnum mínum... oftast.
Prófaðu að skola út smákökum og tímabundnum skrám... virkar hjá mér og Eldrefnum mínum... oftast.
Ég eyddi út öllum Baggalútskökunum - og það virkaði. Takk fyrir! Ljómar upp
Prófaðu að skola út smákökum og tímabundnum skrám... virkar hjá mér og Eldrefnum mínum... oftast.
Ég eyddi út öllum Baggalútskökunum - og það virkaði. Takk fyrir! Ljómar upp
Svo það er hægt að óverdósa á Baggalútssmákökum?
Svo virðist vera já. Stendur á blístri
Svo virðist vera já. Stendur á blístri
Hvað er þetta standa á blístri annars?
Svona eins og lappalaus kona sem stendur á gati.
Er hægt að leiða þetta til lykta þar sem þetta hefur þegar á annað borð borið á góma?
Ég hef grun um að þetta sé til komið vegna þess að maður er fullur af lofti sem vill leka út þegar maður er saddur - eða eitthvað.
En bera á góma - er þá verið að tala um tannkrem?
Nei, ekki tannkrem, hún sagði borð!
Er þá verið að tala um að bera tannkrem á borð? Starir þegjandi út í loftið