Ég er að lesa bókina um Ella eftir Eddu Björgvins og Helgu Thorberg.
Vjer erum að klára Hrunið og erum nýbúnir með Karlar sem hata konur.
Ég var að byrja á bók um sveitunga minn. Reyndar er bókin eftir sveitunga minn líka. Báðir óttalegir njerðir sýnist mér.
Ég var að enda við að lesa Ísprinsessuna eftir Camillu Läckberg. Nú er ég ekki að lesa neitt.
Ég er með tvær bækur í gangi núna. Annarsvegar er það bókinn Nótt úlfana eftir Tom Ekeland og hinnsvegar 8 gata Buick eftir Stephen King.
Ég er að lesa The travel book frá Lonely planet sem frábærir gestapóar og -píur gáfu mér í afmælisgjöf fyrir rúmum 2 árum. Alveg úrvals bók frá úrvals fólki...
Ég les líka reglulega í bókunum eftir þá Njál og Skarphéðin. Skemmtilegust finnst mér alltaf sagan um Gauk á Stöng.
Grallaraspói. Hins vegar las ég um daginn ágæta grein Jóns Helgasonar um einmitt Gauks sögu Trandilssonar.
Ég byrjaði aðeins að glugga í bókinni Nýja Ísland eftir Guðmund Magnússon í kvöld, svona ofan á allt annað sem ég er að glugga í.
Hafið þjer gluggað í Glugga 7 ? Glottir eins og fífl
Nei, ekki enn. Kannski Gluggagægir muni færa mér hann í skóinn.
Ég er að lesa 1914 eftir einhvern rússa sem byrjar á S, en er ekki hægt að bera fram nema með vodka.
Ég les allt of mikið af fagbókmenntum á kostnað fagurbókmennta.
Ég er að lesa Criminology eftir Larry J. Siegel.
Ég er líka að lesa Hr. Pratchett ...
...Equal Rites nánar tiltekið. Ljómar upp
Ég er að lesa ágætis ferðabók sem ber titilinn 'No shitting in the toilet' eða 'Bannað að skíta í klósettið' eftir Peter nokkurn Moore. Næst á dagskrá er svo líklega 'McCarthy's bar' e. Pete McCarthy eða 'The art of travel' e. Alain de Botton.
Laxdælu.
Er líka að glugga í Múlaþing, las í nótt áhugaverðan þátt um búskaparsögu Eiríks Einarssonar í Innri-Álftavík, á Eldleysu og víðar.