Hvar ætli væri annars best að hafa snjóverksmiðjuna ? Á sama stað og húsin sem snjórinn átti að sjá um að myndu hrynja ?
Klórar sjer í höfðinu
Þá verður að fá tröllskessuna á staðinn áður en snjóverksmiðjan verður stofnuð.
Skessan er örugglega á leiðinni. Amk miðað við dýrindis ilminn sem leggur frá smákökubakstri Regínu. Er ekki mál að fara að leita að nógu löngu sippubandi fyrir tröllið til að sippa með.
Það mætti setja inn í neyðarlögin að allir almennir þegnar Baggalútíu verði skikkaðir til að láta raka af sér allt hárið, vegna lúsaleitar. Úr hárinu má síðan flétta sippuband.
Neyðarlög eru æði.
Eins og greinilega sést á einkennismyndinni minni þá er ekki stakt hár að finna á spaðanum á mér, ja og ekki skaftinu heldur. Svo það þýðir ekki að ná af mér sippubandagerðarefni.
Og ég sjálfur er vitaskuld undanskilinn, þar sem ég telst ekki til almennra þegna. Hið sama gildir um alla þá sem gegna mikilvægum embættum innan stjórnkerfisins, sem og ættingja þeirra og helstu trúnaðarvini.
Hinsvegar er spurning hvort ekki megi ræna hári frá raunheimaleikurum einhverra gesta hjer í staðinn. Þó ostaskerinn hafi eigi hár væri hægt að leysa það vandamál með þessari aðferð Glottir eins og fífl.
Svo skilst oss að raunheimaleikari vor muni hugsanlega fara til rakara í þessari viku.
Neinei. raunheimaleikkona mín er uuu.. hérna, hún er sko sjáðu til hérna... Henni var rænt. Já henni var rænt, sko rænt svo hún er bara týnd eða eitthvað.. Og hún tók hárið með sér svo það er utan seilingar. Kippist til á taugaóstyrkan hátt
Raunheimaleikari minn fellst á að gefa það hár sem af fellur þegar hann fer í jólaklippinguna. Lengra vill hann þó ekki ganga, og vitnar þar í reglur Félags íslenskra leikara. Hvimleið þessi 'réttindi' alltaf hreint. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég skal samt snoða gæludýrin og gefa ágóðann í sippubandagerð. Ljómar upp
Ég á tvo ketti og kanínu sem fara stundum úr hárum og þá er ágætt húllumhæ af hári sem ég er tilbúin til að leggja í púkk í þetta verðuga málefni.
Mínir kettir eru nú ekkert svo hærðir. Varla að þetta sé upp í nös á öðrum þeirra samanlagt.
Ég á hest.
Ég á tvo ketti og kanínu sem fara stundum úr hárum og þá er ágætt húllumhæ af hári sem ég er tilbúin til að leggja í púkk í þetta verðuga málefni.
Svo eru tígrisdýr stór og því hægt að fá mikið af hárum af þeim Ljómar upp og kemur með tilheyrandi græjur. Er það annars ekki örugglega samþykkt ?
Ég sé að hin konan er inni núna. Starir þegjandi út í loftið
Svona one-night-stands eru alveg óþolandi.
Hún kemur blaðskellandi og er svo horfin með það sama! Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
[size=24]Knús[/size]
Ég á tvo ketti og kanínu sem fara stundum úr hárum og þá er ágætt húllumhæ af hári sem ég er tilbúin til að leggja í púkk í þetta verðuga málefni.
Svo eru tígrisdýr stór og því hægt að fá mikið af hárum af þeim Ljómar upp og kemur með tilheyrandi græjur. Er það annars ekki örugglega samþykkt ?
Krútt
GRUPPEKNUS!