Nei. En ég hef fengið brúnsápu í augun. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.
Hefur þú átt við holdarfarsvandamál að stríða?
Neinei, ég hef alveg nóg og hef alltaf haft.
Hefur þú átt ekkert?
Hvaða leg? Efast um að liðið mitt vilji hafa eitthvað leg á sér.
Hefur þú fengið "hasssperrur"[sic]?
Sá þetta skrifað svona á Smettisskruddunni.
Vill svo skemmtilega til að ég hef fengið Harðsperrur og líka Hasssperur eða að minnsta kosti mína skilgreiningu á viðlíka ástandi.
Hefur þú dáið?
Nei, ekki í eiginlegri merkingu... nema ég sé að upplifa eitthvað Sixth sense dæmi og ef svo er þá HJÁLP!!!
Hefur þú hugmynd hvað ég ætti að fá mér í hádegismat?
Já.
Hefur þú leiðst út í eitthvað vafasamt?
Það mætti segja það já.
Hefur þú lent í því að heita vatnið klárast og þig sárvantar að komast í sturtu?
Já, oft. En það er langt síðan.
Hefur þú lent í því að vatnið sem kemur úr sturtunni er óhreint svo þú ert bæði hrein/n og moldug/ur á eftir?
Nei.
Hefur þú þrifið þig hátt og lágt með blautum klút?
Já, ef ég man rétt.
Hefur þú boðið öllum sem vilja í glas á árshátíð?
Nei.
Hefur þú orðið vitni af einhverjum sem vildi bjóða öllum öðrum í glas á árshátíðinni?
Já!
Það var sirka áðan...
Hefur þú þegið í glas ásamt öllum á árshátíð en ekki haft neitt upp úr því?
Já.
Hefur þú boðið öllum í glas og ekki staðið við það?
Nei...
Hefur þú hugmynd um hvernig árhátíðin fór í gær?
Nei. Og í sannleika sagt frekar áhugalaus. Þetta er alltaf það sama, hefur mér sýnst.
Hefur þú slengt vínberjaklasa í andlitið á einhverjum?
Nei.
Hefur þú jafnað þig eftir árshátíðina?
Nei
Hefur þú verið á árshátíð?