Annars var ég að brölta við það sem kallað er vinna.
Var að taka eftir því að ég var einnig að ferðast í tíma. Var einnig að taka bjórdósina sem ég opnaði í gær af borðinu, hún var enn hálftóm (hálffull).
Opnar einhver annar dósirnar fyrir þig? Eða ertu vanur að drekka flöskubjór?
Annars hef ég ekki drukkið neinn bjór í þessum mánuði ...
Ég var að vakna eftir verðskuldaðan nætursvefn.
Hvað gera menn til að verðskulda nætursvefn? Vaka eina dagstund?
Ég var að vakna eftir verðskuldaðan nætursvefn.
Hvað gera menn til að verðskulda nætursvefn? Vaka eina dagstund?
Það er ekki öllum gefið að geta sofið bara af því að þeir þurfa á því að halda og hafa næði til þess. Ég er mjög ánægð með minn rúmlega 9 tíma svefn í nótt, og hann var sannarlega verðskuldaður.
Ég var að koma heim eftir ágætis kvöldvakt Ljómar upp
Var ekki að beygja mig í áttina til Mekka. Til hvers?
Ég var ásamt vinnufélaga mínum að setja saman sölutilboð fyrir hugbúnað sem hljóðar upp á rúmar 26 milljónir. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann Hrikalegt að vera ekki á prósentum hérna.
Reyndar er ég á prósentum, svona sirka fimmtíu prósentum af því sem ég á skilið, held ég.
Ég nærðist og vil nú helst lúra á meltunni að kattasið.
Ég var að kaupa mér græn föt. Ekki svört, hvít, grá eða fjólublá.
Ég var að vakna. Starir þegjandi út í loftið
Þvo þvott... og nú er ég að fara að elda. Dæsir mæðulega og saknar foreldrahúsa
Vjer vorum að kanna formlega hvort á Gestapó hefðu bæst við innlegg síðan vjer settum inn innlegg fyrir fáeinum mínútum. Reyndist svo eigi vera.
Ég braut rétt í þessu rauðvínsflösku sem átti að spara til kvöldsins og vona að þar sem sé ólukku föstudagsins þrettánda formlega lokið. Gólfið leit út eins og í þessu atriði hér: http://www.youtube.com/watch?v=MQk1aZjUV34 (hefst 3:46).
Ég var að hnerra. Vona að ég sé ekki kominn með svarta dauða.
Senda frá mér verkefni tölvuleiðis, næst ætla ég að fara að kaupa í helgarmatinn.
Koma heim úr vinnunni, örþreyttur, sofnaði næstum á leiðinni.
Vakna til lífsins! ۩۩۩۩۩۩۩۩۩۩№øÆ№˛o