Djöfuls vitleysa sem þessi þráðarómynd er, allir vita að Satan notar Macintosh og aðrar vörur frá Apple nær eingöngu...
Sammála, iTunes er pottþétt verkfæri Djöfulsins. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Djöfuls vitleysa sem þessi þráðarómynd er, allir vita að Satan notar Macintosh og aðrar vörur frá Apple nær eingöngu...
Ég biðst forláts, en allir með eitthvað vit í hnetunni, vita að Herrann sjálfur og hjálparsveinar hans nota iMac og verkfæri framleidd af Steve Jobs.
Skrattinn forðst slíkt sem vígt vatn.!!
Ekki furða þá að allt sé að fara til fjandans... Starir þegjandi út í loftið
Óvinir ríkisins eru hið eina sanna verkfæri djöfulsins Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer.
Bendiputtinn er verkfæri satans. Hafa margir frægir menn týnt lífi sínum sökum hæfileika svikara til að nýta þennan putta til bendinga.
Satan, um Satan, frá Satni, til Satans...
Hmmm.... ekki frá Satanni?
Nei... Satni.
Skyldi þá einnig gilda fallbeygingin:
Natan
Natan
Natni
Natans?
Glottir laumulega.
Að sjálfsögðu. Glottir eins og fífl
En hvað með tanið ? Er það þá svona:
tan
tan
tni
tans
Klórar sjer í höfðinu
Verkfæri Satans eru malbikaðir vegir. Ég vann mest alla starfsævi mína við vatnskassaviðgerðir og þeir eyðilögðu þá heiðvirðu starfstétt með þessu béskotans malbiki.
Ég neyddist til að sjá fyrir mér með vændi eftir það.
En hvað með tanið ? Er það þá svona:
tan
tan
tni
tans
Klórar sjer í höfðinu
Er þetta ekki eitthvað óæðra tungumál? Sé ekki svo, þá er tan hvorugkyns orð og beygist ekki eins.
Kjartan um Kjartan frá Kjartni til Kjartans?
Kjartan um Kjartan frá Kjartni til Kjartans?
Laukrétt!