Ef það er eitthvað verkæri sem hefur verið hannað af satan sjálfum, þá er það Gagnavinnsluvélin svokallaða.
Þetta skrýpi getur aldrei verið til friðs, serstaklega ef Bill Gates hefur komið nálægt einhverju sem er á téðri Gagnavinnsluvél.
Rífur í hár sitt og hleypur organdi út af sviðinu, hittir ekki á hurðargáttina heldur rotast með því að hlaupa á hurðina sjálfa. Fær gat á hausinn, hrynur á sviðið og blóðið slettist út um allt.
Nei, þetta er alrangt. Þjer þurfið bara að kynna yður þetta betur:
Færir Kveifarási yfir 1000 síðna doðrant sem titlaður er Murphy's Law for Dummies
Ég held að ef við ætlum að leggja niður orðið 'tölva' þá væri líklega best að taka upp nýyrðið mitt 'skiljir'.
Neiii verkfæri satans er án efa klemmu-kornatöng. Allveg ótrúlegt hvað mér tekst alltaf að vera skjálfhent með þetta bévítans verkfæri í höndunum.
Verkfæri Satans er án efa uppþvottabursti... þvílíkt og annað eins óþurftaverkfæri hef ég alldrei notað og mun ekki nota framar... Sýnir sýkt svöðusár á hægri mjöð því til sönnunar
HAHAHAHAHAA! Ég er verkfæri Satans!
Eruð þið öll þrossar ?
Verkfæri Satans er að sjálfsögðu pestó.
Verkfæri Satans eru án efa nýju gröfurnar í sandkössum landsins. Miðaldra maður sem ég þekki ágætlega og er óumdeildur snillingur hannaði svona mokstursgröfu fyrir son sinn, þessar með tveimur handföngum, annað til að lyfta arminum upp og niður og hitt handfangið togaru að þér til að láta skófluna sjálfa færast fram og aftur.
Hann fékk einkaleyfi fyrir þessari uppfinningu og seldi hana á marga af leikskólum landsins. Síðan lenti hann í málaferlum við eitthvert risa leikfangafyrirtæki sem stal hugmyndinni hans nema breytti henni (vegna einkaleyfisins) þannig að maður þarf að ýta handfanginu frá sér til að moka, ótrúlega heimskuleg hönnun og nokkuð sem enginn leikskólakrakki getur ráðið við. Það er sko verkfæri Satans. starir þegjandi út í loftið
Gjörla man ég eftir að hafa brúkað álíka verkfæri og minnst er á hér að ofan snemma á skólaferli mínum. Eini gallinn við tækið var að sandurinn vildi klárast allt í kring. Það tiil marks um heimsku barna að átta sig ekki á því að moka til baka því sem mokað var í burtu. Kannski hafa "útrásarvíkingarnir" ekki þroskað með sér æðri þankagang síðan á leikskólaárunum?
Sjálfstæðisflokkurinn er verkfæri Satans!
Satan á fullt af verkfærum. Sjálfur hef ég verið að laumast í verkfærageymsluna hanns lengi. Sló grasið fyrr í mánuðinum með slátturvél andskotans.
Ljárinn?
Á flestum þeim myndum sem ég hef séð af Satani gamla hefur hann yfirleitt verið með einhverskonar heykvísl eða grillspjót með þremur tindum og sá í miðið sínu lengstur. Hvað hans lággöfgi notar þetta verkfæri sitt, er mér hins vegar hulin ráðgáta, enda hef ég lúmskan grun um að kallinn sé latur til vinnu og ekki mikið fyrir verklegar framkvæmdir. Hann er víst meira svona í stefnumótun og yfirstjórn.
Satan á fullt af verkfærum. Sjálfur hef ég verið að laumast í verkfærageymsluna hanns lengi. Sló grasið fyrr í mánuðinum með slátturvél andskotans.
Ertu slyngur?
Grænmetisbuff og grænmetislasagna er vafalaust eitthvað sem komið hefur uppúr dýpstu pittum Vítis!
Djöfuls vitleysa sem þessi þráðarómynd er, allir vita að Satan notar Macintosh og aðrar vörur frá Apple nær eingöngu...