Eppli (e. Apple) hefur nýverið sent út um 4.8 miljón snjóhlébarða (e. Snow Leopard) og hafa póststarfsmenn víðsvegar um heim tekið sig saman og mótmælt því harðlega. Fara þeir fram á að fá sérstakt áhættuálag þar sem dýrin eru um 150-200 kg. og hafa nú þegar um 600 starfsmenn póstþjónustunnar víða um heim horfið sporlaust.
Í viðtali við einn þekktasta póstmann allra tíma hann Pál segir hann að hann hafi aldrei séð neitt í líkingu við þetta áður, " Það slapp einn hjá mér um daginn og ég var kominn í um 140 Km/h hraða á sæbrautinni en samt stakk kvikindið mig af" Páll Líkt og margir aðrir póstmenn hafa farið fram á 350 Kr. áhættuálag á stykki en fynnst allavega lágmark að fá kort í sundlaugarnar til að geta slappað af í pottinum eftir svona vinnudaga.
Páll segist ástandið svo slæmt að kötturinn Njáll þvertaki fyrir það að koma með honum í vinnuna lengur og hangi núna aðalega heima á ircinu.
Athyglisvert. Spurning er hvort Páll ætti að ekki uppfæra köttinn í eitthvað stærra, t.d. ljón. Það kynni að halda snjóhljebörðum í hæfilegri fjarlægð. Að vísu gæti ljónið tekið upp á því að eta Pál en koma má í veg fyrir slíkt með því að ganga um í brynvörn úr kóbalti.
Getum við ekki bara beðið Tígru að hætta að éta póstburðarmenn og færa sig út í e-ð sem má missa sín... eins og til dæmis pólitíkusa?
Póst starfsmenn? Er fyrra orðið latína?
Póst starfsmenn? Er fyrra orðið latína?
E.t.v. þýðir post-starfsmaður sama og dreki.