Þessi þráður er alveg eins og Hagyrðingar allra landa sameinist nema hvað að hér er skyldubundið að yrkja um hagfræði. Gildir það jafnt um fyrriparta og botna.
Ég ríð á vaðið:
Þá er búin þenslan í
þjóðarframleiðslunni.
Þá er búin þenslan í
þjóðarframleiðslunni.
Veltan sjaldnast veitir frí
frá vísaraðgreiðslunni.
Hugtökin í hagfræðinni
heldur snúin reynast mér.
Þá er búin þenslan í
þjóðarframleiðslunni.
Landakútar lifna því
landinn brugga kunni.
Seðlabankastjórinn stóð
stoltur upp og sagði:
Það má alveg sleppa því að botna minn botn, þetta er eiginlega ekki hagfræði.
Seðlabankastjórinn stóð
stoltur upp og sagði:
"Upp á borðið, elsku þjóð
ég ávallt spilin lagði."
Hugtökin í hagfræðinni
heldur snúin reynast mér.
Jaðarteygni ég þó finni
jafnan glötuð dreifnin er.
Eftirspurnareignalíkan
útlánastýringu ræður
Eftirspurnareignalíkan
útlánastýringu ræður.
Nýfrjálshyggjunáhirðsklíkan
nú svíkur fjárdreyrabræður.
Bindiskyldan, skorin niður,
skuldir Íslands jók.
Bindiskyldan, skorin niður,
skuldir Íslands jók.
Vísitölu vex nú kviður
er verðbólgan þungt skók.
Krónugengið flýtur fúlt
að feigðarósi.
Krónugengið flýtur fúlt
að feigðar- djöfuls -ósi.
Davíð upp við píslar púlt
prangara vefur hrósi.
Englandsbanki geymir gullið.
Glaðlyndur er fýrinn Brávn (Brown)
Englandsbanki geymir gullið.
Glaðlyndur er fýrinn Brávn (Brown).
Fjársvikanna súpusullið
seint mun teljast þjóðarlán.
Schumpeter og Hannes Hó,
Hayek, Milton Friedman.
Schumpeter og Hannes Hó,
Hayek, Milton Friedman.
Frjálshyggjunnar festu gró
í frjóum Íslandsskít, man.
Stieglitz núna stendur keikur,
styður sjóðsins plan.