http://baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=9994
Á þessari slóð má finna samning milli okkar Vamban. Samningur sá felur í sér sölu sálar minnar til mín aftur, en sál mín hafði verið í eigu hans í háa herrans tíð fram að því. Eitt atriði í þeim samning var það, að andlit Bandaríkjaforsetanna fjögurra, sem prýða Rushmorefjall í Suður-Dakótafylki Bandaríkjanna, skyldu verða afmáð og í staðinn myndi koma andlitsmynd af Vamban, auk annara lögráða einstaklinga. Fyrsta áfanga þessa verks hefur loksins verið lokið og má sjá árangurinn hér.
Jæja Vamban, farðu nú að láta sjá þig aftur!
Vamban birtist hér í mýflugumynd fyrir fáeinum dögum.
Svona eins og ég þá?
Ja, jafnvel minna því hann tjáði sig ekkert. Starir þegjandi út í loftið
Loksins verðugt verkefni á vegum baggalútíska heimsveldisins Ljómar upp eins og 1.000.000 MW plútóníumljósapera og sjer í draumsýn fyrir sjer röð fagurgrænna Gestapóa á Rushmorefjalli.
Tengjast minnkandi kóbaltbirgðir forsetaembættisins að undanförnu þessu verðuga verkefni eitthvað ? Ljómar upp
Hvur andskotinn og baðvatnið hans! Maður er í smá meðfer...sumarleyfi og þegar maður kemur aftur er búið að höggva ásýnd manns í heilt fjall!
Þetta hlýtur að kalla á ærlegt fyllerí gásir og melir.
Skál!
Verst fyrir þig hvað þú bliknar í samanburði við aðra á þessum kletti. fær sér í nefið
Ertu að meina að ég sé ekki jafn fjallmyndarlegur?
Kargur og Vamban báðir komnir með höggmynd af sér... en hverjir eru hinir?
Ég man ekki betur en séntilmaðurinn Herbjörn Hafralóns hafi verið mér við hlið á þessu meistaraverki. Hví var honum skipt út fyrir Vamban? Ekki það að Vamban eigi ekki skilið að vera þarna með okkur, en hefði ekki mátt fórna öðrum hvorum hinna?