— GESTAPÓ —
Yrktu eitthvað fallegt
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3, 4, 5  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
25/5/09 22:58

Stundvís, þegar aðrir eru seinir.
Ekki standa framar honum neinir.
Getur allt - já ef hann bara reynir -
öðlingurinn sanni, Þarfagreinir.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Regína 29/6/09 10:14

Litlar reyni fréttir færa,
flinkur sést um vísnamó,
upp hér rennur eðla, tæra,
orðafljótið mikla, Pó.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 29/6/09 10:19

Regína er rokna hot
rúnnar línur, heví flott
djöfull er það geðveikt gott
er gefur hún mér.... fondúpott.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 29/6/09 13:11

Aldrey hans ég innlegg sé
sem algerlega sökka.
Hann ég lít sem heilög vé,
hann er gvöð og lökka.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 29/6/09 13:21

Öðlingurinn ást og fé
aldrei neinn við sparði.
Hímir á Háabarði
Billi Bilaðe.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
29/6/09 16:50

Goðsögnin um gastiR lifir,
gleðiríka.
Öðrum hátt ber höfuð yfir.
Herðar líka.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Regína 9/7/09 23:25

Svo auðvelt það er að yrkja lof
um annan eins gæðadreng,
að ána menn vaða upp í klof
og allt upp í mittisþveng.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Blöndungur 27/8/09 22:08

Regína - hún rjóminn er,
af rekkum Gestapósins hér,
situr oft við Sónarker
og sveipar um sig orðaher.
Hún er sú, það sér hér hver,
er saltar grautinn okkar - hér.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Loki 29/8/09 21:46

Án þín væri elsku vinur allt í messi,
og Ladan mín í lamasessi.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 30/8/09 01:19

Við Loka mér líkar svo mikið
látið hann fara yfir strikið
hann er svaklega stór
og svolgra sko bjór
og nafnið sitt ritar í rykið.

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kynjólfur úr Keri 30/8/09 01:32

Stend og hampa stólpagæðum
stórhrifinn.
Og yfir drengsins eðalkvæðum
upprifinn.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 5/9/09 19:11

Aldrei stundar hérna hrekki
höfðinginn frá Keri.
Kynjólfur hann klikkar ekki
kokkaður með sméri.

To live outside the law, you must be honest.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 5/9/09 21:15

Skarpmon ei skammir fær
hann skemmtir mér endranær
þegar fullur hann fer
frábær þykir hann mér
í flöskum er fjarri því glær

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Blöndungur 24/9/09 20:46

Upprifinn er óstirfinn,
uppfyndinn og launfyndinn,
innleggin hans ófyndin,
eru fá, það einatt finn.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 24/9/09 21:52

‹Lætur allt draslið ríma - eða svona allt að því›

Vísnagarpur, vænstur jarl
var bara í skoru borinn.
Býsna snarpur, kænstur karl
karbara-rora-torinn.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Günther Zimmermann 11/10/09 15:44

Ekki líkist póinn pest,
párar hérna allra best,
mér finnst það nú vera verst
að vita bara einn Hlégest.

Antiqvarius Imperii BACCALVTII - Vörzlumaður Fjársjóðskammers forsetaembættisins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Günther Zimmermann 12/10/09 16:10

Frábærastur finnst mér hann,
fyrnarokna æði,
Günther sjálfur Zimmermann,
symbol er um gæði.

(Svona fyrst enginn annar var til þess... Og ég veit að það er hæpið að stuðla z við s. Þið virðið það við mig. Svo er síðasta línan vísun í auglýsingu sem lengi var á vefnum hér um árið.)

Antiqvarius Imperii BACCALVTII - Vörzlumaður Fjársjóðskammers forsetaembættisins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
12/10/09 17:43

Séní er hann Simmermann,
sannur merkiskálfur.
Vel jú enda virðist hann
vita af því sjálfur.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
LOKAÐ
        1, 2, 3, 4, 5  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: