Já. Er upptakan byrjuð?
Ókei...
...já...
...hallló...
...einn, tveir...
Bankar í hljóðnemann og lætur svo pípa í hátölurunum í dágóða stund
...Fyrr í kvöld hafði ég ekki komið hingað inn í dálítinn tíma. Kannski tvær eða þrjár vikur, gróflega áætlað.
En ég kom hingað inn í dag/kvöld. Af hverju birtist þá ekki yfirlit yfir það sem er nýtt síðan ég kom hingað inn síðast, eins og venjulega þegar ég kemi hingað inn?
Ég nota nýjasta Safari-vafrann(fyrir mac-eithvað), ef það hjálpear eitthvað..
Vona að einhver skilji þessa spurningu. og geti svarað henni.
Afsakið mig ölvaðan.
Með vinsemd og virðingu,
Línbergur Leiðólfsson.
Besta lausnin...
1. taktu Maccan þinn úr sambandi.
2. Fleygðu honum í ruslið.
3. Fáðu þér PC (Eða jafnvel Sinclear Spectrum... það væri meidjor uppfærsla á Maccinu.)
4. Lifðu hamingjusamur til æfiloka.
Tek undir með Gráa. Henda makkanum. En að kaupa.... það gæti verið dýrt.
Enn betri og ódýrari lausn væri að fara niður á bryggju og stela síldartunnu.
Fara síðan í byko og kaupa allskonar dót, skiftir ekki máli hvað, bara einn brúsa af hinu og þessu, nokkra metra af vír, gott reipi og kanski stoppa við í matsölunni og athuga hver súpa dagsins er.
Fara síðan á sjúkrahús, stela læknisslopp og labba um einsog læknir og fara inn í einhverja geymslu, bara einhverja og setja bara eitthvað í poka, skiptir engu máli hvað, má jafnvel bara vera sloppurinn sem þú stalst áðan. Mikilvægast er að það sé eitthvað í pokanum þegar þú ferð út.
Svo er bara að sturta öllu á risastórt vinnuborð sem þú ert með í stofunni og smíða tölvu.
Já eitt enn, best er að eiga lóðbolta á óskilgreindum stað, helst bara hafa hann alltaf í vasanum, maður veit aldrei hvenar svona stundir koma upp.
Svo bara, voila... smíða tölvu úr öllu sem þú ert með. Mjög auðvelt, sá þetta í Burn Notice um daginn og þetta var ekkert mál.
Bk
Hvæsi.
1) Farðu í sturtu.
2) Kauptu þistilhjörtu.
3) Makaðu þeim á þig allan og borðaðu svið á meðan.
4) Farðu í vélskólann (nú tækniskólann) og lærðu 4. stigs vélfræði.
5) Farðu á togara sem 1. vélstjóri.
6) Hættu svo að grenja...
1) Farðu í sturtu.
2) Kauptu þistilhjöru.
3) Makaðu þeim á þig allan og borðaðu svið á meðan.
4) Farðu í vélskólann (nú tækniskólann) og lærðu 4. stigs vélfræði.
5) Farðu á togara sem 1. vélstjóri.
6) Hættu svo að grenja...
Bíddu, bíddu...
Hvar og hvenærr á ég að fá stöðu sem fyrsti vélstjóri...?
Ég sem fæ ekki einu sinni pláss sem háseti, hvað ´þá meia....
...am.m.k. ekki svona durukkinnn....