Bálar upp og fuðrar funi
freystingunum gætum að.
Því oft á tíðum bytur bruni
bugar menn í hjartastað.
Hjartastaðar-hænurnar
hoppa mikið núna
þær kjaga upp í kænurnar
kengfullar og múna
(en það er ekki að meini, nei það er ekki meini
við grillum þær á gríðarstórum teini.)
Teini einum troðið hef
talsvert oft í gatið þitt.
Núna frest og greiða gef
þér geðveika kona til að laga þessa holu í veggnum þetta er óþolandi!
Óþolandi, ekki vært
ömurlegt með sann.
Evró-gaulið engum kært
er að drepa mann.
Maðurinn með látum kemur,
magnaður kappi hér á ferð.
Vísur hann sko látlaust semur,
svo sem þessa sem þú sérð.
Ath. ég er ansi nýr í kveðskap, þetta er allt að koma...
Maður hér einn heldur betur
henti sér á eigið sverð.
Læra þyrfti langan vetur
ljóðin betur eins þú sérð.
Minni á skólastofuna http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=8076
Sérðu ekki svikráðin?
sérðu ekki blöffið?
Nú er þessi þjóð bráðin
þrjótar hirtu stöffið.
Stöffið horfið burtu brott
brotnar niður lýður.
Engum manni gerir gott
gengishalli stríður.
Stríður halli stráð er braut,
stórgrýti og fárið.
Verð að eta vellingsgraut,
væntanlega' allt árið.
Árin þjóta óðum hjá,
eins og vindur.
Oftast jarma allir þá,
eins og kindur.
Kindur karlinn þráði
en konur ekki neitt
frjói sínu sáði
í svörðinn ofurheitt.
Ofurheitt ég elska þig
elsku ljúfa kona.
Ei samt lífið ljúft við mig
lífið er víst svona.
Svona gekk það langa lengi
lætin í Kára eru slík.
Ekki er fyrir dáðar drengi
að dvelja í henni Reykjavík.
Reykjavík er spillt og spjölluð
spillingin var ekki sýnd.
Borgin okkar glötuð gölluð
gleymd og öllum kærleik týnd.
Týnd er talan,
tvinninn líka.
Skamma skal'ann
Skúla ríka.
Týnd er litla Mosa mín
mjög ég sakna hennar.
Fyrir sjónum gapið gýn
góðar á buxur tvennar.
-------------------------
Ríka Skúla Skallagríms
skulum við nú taka.
Maka karlinn lúti líms
lemja svo neð haka.
Hakakrossins heljartákn
heimtar landið okkar
Glatað Evru gerfibákn
grunlausa nú lokkar.
Lokkar Bakkus marga menn,
magnar böl og þrautir.
Samt ég laðast æ og enn
út á syndabrautir.