Agile verkefnastjórnun með Scrum
Á námskeiðinu verður gefið yfirlit yfir helstu aðferðir innan Agile, sérstök áhersla verður lögð á Scrum aðferðafræðina sem hefur náð töluverðum vinsældum síðustu ár. Þar verður fjallað um helstu hugtök, hlutverk og uppbyggingu aðferðafræðinnar og tengsl hennar við skipulag fyrirtækja í dag. Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum og æfingum í hópum.
Má velja með hverjum maður er í hóp?
Er hægt að fá afslátt?
Merkilegt nokk þá vinn ég eftir þessu scrumkerfi núorðið.
Ég er scrumari, og stoltur af því. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ég átta mig á því núna að þetta er einhvers konar Dale-Carnegie dæmi. Ég sem hafði alltaf lagt allt aðra merkingu í nafn Scabba.
Kemur fram á námskeiðinu hvort einhver munur er á skrumi og scrumi ?
Því miður, þeir sem borga ekki námskeiðagjöldin, fá engin kennslugögn... Glottir eins og fífl
Hvað kostar? Má borga í ákavíti?
Íhugar það alvarlega í nokkrar sekúndur hmm... er venjan að borga í einhverju öðru Klórar sér í höfðinu
Rjett í þessu heyrðum vjer kvartað yfir alvarlegum skrumskorti í kosningabaráttu. Leggjum vjer því formlega til að skrumnámskeiðum verði fjölgað stórlega því þetta er augljóslega mjög alvarlegt vandamál.