Já hver hefur ekki gert það
Hefur þú verið slegin utan undir af yfirmanni?
Nei (hef verið lamin af viðskiptavini á bar... en svo var hann laminn líka).
Hefur þú borðað yfir þig af kjötbollum?
Nei, það held ég ekki.
Hefur þú verið svo pirruð/aður á börnunum þínum að þig hefur langað að gefa þau?
Ef að með börnum þú meinar beljum og með pirraður þú meinar glaður og með gefa þú meinar kyssa, þá já.
Hefur þú verið hamingjusamur kúasmali í dag?
Þýðing hefs Hefur þú verið svo glaður með beljurnar þínar að þig hefur langað að kyssa þær?Þýðingu lýkur
Nei, ég er ekki kúasmali, ég er kýr - Elgkýr.
Já - alveg rétt.
Hefur þú fengið kynsjúkdóm?
Nei.
Hefur þú misst tönn nýlega?
Nei.
Hefur þú synt nakin(n)?
Já. Fær bæði þynnku og móral við tilhugsunina.
Hefur þú stolið einhverju?
Já - a.m.k. strangt til tekið.
Hafið farið í sund um miðja nótt þó laugin væri lokuð ?
Nei. Ég hef stundað mitt miðnætursund í laug sem aldrei er lokuð.
Hefur þú fengið hrós frá ókunnugum?
Já, nú síðast í gær var mér hrósað í hástert fyrir glæsilegan skóbúnað.
Hefur þú hrósað ókunnugum?
Já, ég hrósaði starfsmanni í verslun fyrir að finna það sem mig vantaði, fljótt og örugglega.
Hefur þú pirrast í stórverslun?
Já, í Hagkaup. Hverjum dettur í hug að setja Japana, sem skilur enga íslensku og sáralitla ensku, í leikfangadeildina til að þjónusta fólk, sem margt hvert talar enga ensku sjálft.
Hefur þú heftað í fingurinn á þér?
Nei.
Hefur þú skorið í fingurinn á þér?
Nei. Enda hef ekki ekki skilað það stórri samantekt, sem þarf að hefta.
Er ætlast til að íslendingar skilji og tali ensku til að geta keypt leikföng í Hagkaup?
Nei
Hefur þú sneitt af lófa þínum með ostaskera?