— GESTAPÓ —
Hefur þú?
» Gestapó   » Lygilega vinsælir leikir
        1, 2, 3 ... 643, 644, 645 ... 839, 840, 841  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kveifarás 7/4/09 11:56

Já hver hefur ekki gert það

Hefur þú verið slegin utan undir af yfirmanni?

Mr. Cabdriver, Engir skápar eru óhultir. Sérlegur einkabílstjóri Flottustu Hljómsveitar Ízlands. Óopinbert viðhald. Athyglismella með meiru!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 7/4/09 12:01

Nei (hef verið lamin af viðskiptavini á bar... en svo var hann laminn líka).

Hefur þú borðað yfir þig af kjötbollum?

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Álfelgur 7/4/09 13:46

Nei, það held ég ekki.

Hefur þú verið svo pirruð/aður á börnunum þínum að þig hefur langað að gefa þau?

Mu!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Texi Everto 7/4/09 13:55

Ef að með „börnum“ þú meinar „beljum“ og með „pirraður“ þú meinar „glaður“ og með „gefa“ þú meinar „kyssa“, þá já.

Hefur þú verið hamingjusamur kúasmali í dag?

• Þetta innlegg á sér ekki endilega stoð í Gestapóleikanum • Söngmaður sólarlagsins og áhangandi ljósaskiptanna • Fjalldrottning Baggalútíu • Riddaralið • Texi Everto treve ixet • Áttavillingur • Vonbiðill Geitarinnar • Matætan frá Mývatni
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Álfelgur 7/4/09 13:57

‹Þýðing hefs› Hefur þú verið svo glaður með beljurnar þínar að þig hefur langað að kyssa þær?‹Þýðingu lýkur›

Nei, ég er ekki kúasmali, ég er kýr - Elgkýr.

Já - alveg rétt.

Hefur þú fengið kynsjúkdóm?

Mu!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 7/4/09 14:01

Nei.

Hefur þú misst tönn nýlega?

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Gaz 7/4/09 14:17

Nei.

Hefur þú synt nakin(n)?

"Staðreyndir hætta ekki að vera til ef þú hunsar þær." • -Aldous Huxley
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 7/4/09 14:23

Já. ‹Fær bæði þynnku og móral við tilhugsunina.›

Hefur þú stolið einhverju?

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 7/4/09 14:51

Já - a.m.k. strangt til tekið.

Hafið farið í sund um miðja nótt þó laugin væri lokuð ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 7/4/09 15:36

Nei. Ég hef stundað mitt miðnætursund í laug sem aldrei er lokuð.

Hefur þú fengið hrós frá ókunnugum?

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Útvarpsstjóri 7/4/09 16:01

Já, nú síðast í gær var mér hrósað í hástert fyrir glæsilegan skóbúnað.

Hefur þú hrósað ókunnugum?

Fjósamaður Heimsveldisins - Eigandi allra prófskírteina Herra Hafralóns - Fjölmiðlafulltrúi RBB
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grýta 7/4/09 16:06

Já, ég hrósaði starfsmanni í verslun fyrir að finna það sem mig vantaði, fljótt og örugglega.

Hefur þú pirrast í stórverslun?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 7/4/09 16:40

Já, í Hagkaup. Hverjum dettur í hug að setja Japana, sem skilur enga íslensku og sáralitla ensku, í leikfangadeildina til að þjónusta fólk, sem margt hvert talar enga ensku sjálft.

Hefur þú heftað í fingurinn á þér?

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Álfelgur 7/4/09 16:47

Já, og það var vont.

Hefur þú klippt í fingurinn á þér?

Mu!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 7/4/09 16:48

Nei.

Hefur þú skorið í fingurinn á þér?

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grýta 7/4/09 16:49

Nei. Enda hef ekki ekki skilað það stórri samantekt, sem þarf að hefta.

Er ætlast til að íslendingar skilji og tali ensku til að geta keypt leikföng í Hagkaup?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Lopi 7/4/09 17:55

Nei

Hefur þú sneitt af lófa þínum með ostaskera?

Lopinn hefur andlit |||||||| The kind monkey |||||||| Ég fíla rokk og rok
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grýta 7/4/09 18:19

Nei.

Hefur bleiki ostaskerinn sneitt af lófa þínum?

        1, 2, 3 ... 643, 644, 645 ... 839, 840, 841  
» Gestapó   » Lygilega vinsælir leikir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: