Frétt nú í kvöld um innbrot í ljósmyndavöruverslun.
"Tilkynnt var um innbrotið til lögreglunnar og gaf vitni greinargóða lýsingu á mönnunum sem sáust hlaupa á brott eftir að hafa brotið framrúðu í versluninni."
Hmm, ætli það sé framrúða í íbúðinni minni ?
"Lögreglulið var þegar í stað kallað á vettvang og fann lögreglan svo tvo menn sem svöruðu lýsingunni við Stýrimannaskólann."
Eru mennirnir líkir stýrimannaskólanum ?Klórar sér í höfðinu
Þrjár bandarískar unglingsstúlkur hafa stefnt saksóknara í Pennsylvaníu. Hann hafði sakað þær um að dreifa barnaklámi með því að senda myndir af sér léttklæddum í gegnum farsíma til vina sinna.
Úr þessu má lesa hvorki meira né minna en átta möguleika:
1) Stúlkurnar sendu myndir af léttklæddum saksóknara í farsíma til vina sinna. Hann reiddist og ákvað að kæra þær fyrir að dreifa barnaklámi. Þær hafa stefnt honum fyrir þá ákvörðun.
2) Stúlkurnar sendu myndir af léttklæddum saksóknara í farsíma til vina hans. Hann reiddist og ákvað að kæra þær fyrir að dreifa barnaklámi. Þær hafa stefnt honum fyrir þá ákvörðun.
3) Saksóknarinn sendi myndir af sjálfum sér léttklæddum í farsíma til vina stúlknanna. Í beinu framhaldi af því kærir hann þær fyrir að dreifa barnaklámi. Þær hafa stefnt honum fyrir þá ákvörðun.
4) Saksóknarinn sendi myndir af sjálfum sér léttklæddum í farsíma til vina sinna. Í beinu framhaldi af því kærir hann einhverjar stúlkur fyrir að dreifa barnaklámi. Þær hafa stefnt honum fyrir þá ákvörðun.
5) Stúklurnar sendu myndir af saksóknaranum léttklæddum í farsíma til vina sinna. Vegna þess hefur saksóknarinn kært þær fyrir að dreifa barnaklámi. Þær hafa stefnt honum fyrir þá ákvörðun.
6) Stúklurnar sendu myndir af saksóknaranum léttklæddum í farsíma til vina hans. Vegna þess hefur saksóknarinn kært þær fyrir að dreifa barnaklámi. Þær hafa stefnt honum fyrir þá ákvörðun.
7) Stúklurnar sendu myndir af sjálfum sér léttklæddum í farsíma til saksóknarans. Vegna þess hefur hann kært þær fyrir að dreifa barnaklámi. Þær hafa stefnt honum fyrir þá ákvörðun.
8) Stúklurnar sendu myndir af sjálfum sér léttklæddum í farsíma til vina sinna. Vegna þess hefur saksóknari kært þær fyrir að dreifa barnaklámi. Þær hafa stefnt honum fyrir þá ákvörðun.
Jú, þó að allir liðirnir séu með óíkindum getur maður dregið þá ályktun að 8) sé það sem blaðamaður vildi sagt hafa.
Texti blaðamanns heldur þó öllum þessum möguleikum opnum. Blaðamaðurinn hlýtur að vera snillingur.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Texta blaðamanns heldur þó öllum þessum möguleikum opnum. Blaðamaðurinn hlýtur að vera snillingur.
Hugsanlegt er að blaðamaðurinn hafi gert þetta viljandi, þ.e. að atburðirnir átta hafi allir átt sjer stað. Myndi það gera mál þetta með afbrigðum flókið Glottir eins og fífl.
Texta blaðamanns heldur þó öllum þessum möguleikum opnum. Blaðamaðurinn hlýtur að vera snillingur.
Hugsanlegt er að blaðamaðurinn hafi gert þetta viljandi, þ.e. að atburðirnir átta hafi allir átt sjer stað. Myndi það gera mál þetta með afbrigðum flókið Glottir eins og fífl.
Vel má vera að þeir hafi allir gerst, í samhliða alheimum.
Ljómar upp
Það gæti verið skýringin - sjeu samhliða alheimar til er öruggt að þeir gerðust allir.