Sje einhver að lesa þetta tókst oss að stofna þennan þráð. Sje enginn að lesa þetta tókst hugsanlega að stofna þráðinn en eigi eru til staðar nægjanlegar upplýsingar til að skera úr um það; það mistókst því hugsanlega.
Þér tókst hugsanlega ekki að stofna þennan þráð. Ég get a.m.k. ekki lesið þennan þráð því ég hef eigi fundið hann enn.
Er ekki að lesa neitt núna, heldur horfir stíft á lyklaborðið
Hafi þessi þráður verið stofnaður, hvernig getum við sannreynt að það hafi í raun og veru verið Vlad sem stofnaði hann?
Hafi þessi þráður verið stofnaður, hvernig getum við sannreynt að það hafi í raun og veru verið Vlad sem stofnaði hann?
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Þetta er reyndar alveg skelfilegur möguleiki - að óvinir ríkisins hafi bæði náð að stofna þennan þráð og koma fyrir minningum í heilabúi voru þess efnis að vjer höfum stofnað hann Fölnar upp.
Til öryggis er best að gera ráð fyrir hinu versta
Þráðurinn var stofnaður án afskipta Hæstvirts Forseta
Ég legg hér formlega fram tillögu þess efnis að allir Gestapóar grípi til vopna - byrgi heimili sín - hamstri matvæli - og treysti engum sem ekki getur framvísað lögbundu skírteini sem staðfestir stöðu þeirra sem Gestapóa, stimplað, í þrígang hið minnsta, af embætti Forseta
HMMM.
Grípur til Vodka

Vjer erum sammála þessu. Vjer teljum oss reyndar muna að það höfum verið vjer sem rituðum upphafsinnlegg þráðarins en vjer munum eigi lengur nákvæmlega orðrjett hvað þar stendur og m.a.s. ekki alveg 100% hvað stendur þar efnislega. Það gæti bent til að um sje að ræða minningu sem komið var fyrir í heilabúi voru af óvinum ríkisins en að sú aðferð sem þeir notuðu við það hafi eigi náð algjörri fullkomnun. Líklegast er þó að vjer höfum ritað upphafsinnleggið en eins og sjá má af þessu er það samt ekki alveg öruggt Byrgir til öryggis forsetahöllina og sankar að sjer enn meiri vopnum en þegar voru til staðar í forsetahöllinni.
Hamstrar hamstra