Þú munt ávallt eygja leið
útúr smáum vanda.
Lendir þú í langri reið;
láttu á þér standa.
---------------------------------
Nauðsynlegt er þol & þrek
þeim sem langt vill ríða
Nauðsynlegt er þol & þrek
þeim sem langt vill ríða.
Gjarnan ég í tauminn tek
ef tindrar sól og blíða.
---
Mig fær ginið margoft til
að mála bæinn rauðan.
Mig fær ginið margoft til
að mála bæinn rauðan.
En vodkað mér þó veitir yl
og gerir margan dauðan.
Senn er út sólarþraut
senn mun vorið koma.
(Ekki veit ég alveg hvaða reglum er verið að fylgja eftir hér, en ég prufa að gera eins og í Róm. ps. það er óttalegur ótuktarskapur að láta mann ríma við 'koma'.)
Senn er út sólarþraut
senn mun vorið koma.
Senn er rétt silfurbraut
senn mun lífið hvoma.
Það ég held og hugsa að
hætti ég að kveða.
Það ég held og hugsa að
hætti ég að kveða.
Hef ég vísum bætt á blað
en býsn ég þarf að streða.
Opnaði ég kalda kók
keypti mér svo nammi
Opnaði ég kalda kók
keypti mér svo nammi
Hægri gaf mér harðan krók
hausnum flaug úr kjammi
Svona hegðar sykur sér
sultað hef ég tennur
Svona hegðar sykur sér
sultað hef ég tennur.
Svoddan nokk hjá flestum fer
fuðrar upp og brennur..
------------------------------------------
Nú er Þorri þreittur
þráir svefnsins ró.
Nú er Þorri þreittur
þráir svefnsins ró.
Sviðakjammi sveittur
sveltur varl', og þó.
Gengur alltaf alltof langt,
alltaf skaltu lengra.
Gengur alltaf alltof langt,
alltaf skaltu lengra.
Ferðalagið langt og strangt
liggur beint til .. engra.
Ekki koma á undan mér
elskulegi vinur.
Ekki koma á undan mér
elskulegi vinur.
Hægt er ekki annað hér,
er þú svona stynur.
Núna hef ég notið þín
nautnin var sko eðal.
Ekki koma á undan mér
elskulegi vinur.
orðin verð ég bráðum ber
býsnin öll þá stynur
Núna hef ég notið þín
nautnin var sko eðal.
Hérna færðu höfugt vín
og höfuðverkjameðal
Ljúfur er nú lakkrísinn
læði honum upp í mig
Ljúfur er nú lakkrísinn
læði honum upp í mig
Ívar dáðar drengurinn
dregur ýsur fyrir sig.
----------------------------------
Tíminn líður nálgast nótt
nú fer ég í háttinn.
Tíminn líður nálgast nótt
nú fer ég í háttinn.
Fyrst skal redda sængursótt
sætan ljúfan dráttinn.
Drullast ég í draumaland
djöfull er þar gaman
Drullast ég í draumaland
djöfull er þar gaman
Geng ég þar í brúðarband,
bíður mín þar daman.
Dagsins blíðu draumar mér
dömu færa hlýja.
Dagsins blíðu draumar mér
dömu færa hlýja.
ljótur veruleikinn fer
lengst þá upp til skýja
Himnafaðir hefur þér
hugsun gefið nýja
"Himnafaðir hefur þér
hugsun gefið nýja."
Ábyrgð þannig, einkum sér
mun efasemdir flýja.
Hjarta mitt nú marið er
- mörgum þannig líður.
Hjarta mitt nú marið er
- mörgum þannig líður.
Ástin sjaldan endist hér
- öllum þannig svíður.
Þjáningar og saltað sár
sýnist mér að verði
Fussar og sveiar yfir ólöglegum seinniparti voffs, sem litið var framhjá sem ekkert væri
Þjáningar og saltað sár
sýnist mér að verði
ráðandi í rúm tvö ár
í rassinum á Herði.
---
Íslands sómi, sverð og skjöldur
sokkinn er