En Sparisjóðirnir? Eru þeir ennþá í lífi eða þarf að endurvekja þá? Já hérna mín, ég átti einu sinni reikning í Sparisjóði Önfirðinga. Já, ég vil fá Sparisjóð Önfirðinga aftur! Og kauffélagið! Og fiskibúðina á Norðurtanga á Ísó!
Ég vil fá framtíðina sem var í gamla daga. Þar að auki var fortíðarrþáin mun betri þegar ég var ungur björn.
En Sparisjóðirnir? Eru þeir ennþá í lífi eða þarf að endurvekja þá? Já hérna mín, ég átti einu sinni reikning í Sparisjóði Önfirðinga. Já, ég vil fá Sparisjóð Önfirðinga aftur! Og kauffélagið! Og fiskibúðina á Norðurtanga á Ísó!
Sparisjóð Önfirðinga ætti örugglega að vera hægt að stofna aftur - Er hann ekki orðinn hluti af Sparisjóðnum í Keflavík? Fiskbúðina í Norðurtanganum held ég að sé erfiðara að fá aftur. Henni var breytt í íbúðarhúsnæði. Var það alla vega þegar ég fór frá Ísó
Nú þegar ríkið er búið að yfirtaka bankana væri þá ekki réttast að sameina þá alla í einn stóran ríkisbanka þar sem öll litlu sætu atvinnulausu möppudýrin og öll pappírspésagreyin sem eru að klekjast út úr viðskiptaskólunum sínum inn í hinn ljóta nýja heim þar sem fólk neyðist til að vinna fyrir aurunum sínum (þ.e. þeir sem enþá eru svo heppnir að hafa vinnu) geta fengið atvinnu við hæfi í stað þess að þurfa að lepja dauðann úr skel sem kennarar eða sorphirðumenn. Svo væri hægt að stofna óendanlega margar nýjar deildir og útibú til að skapa þægilegar og vel launaðar stjórnunarstöður fyrir þurfandi og verðuga vini og vandamenn ráðamanna.
Þetta er áhugaverð hugmynd en fleira má gera. Það ætti að sjálfsögðu að drífa í að byggja hátæknisjúkrahúsið en hafa það á öðrum stað en núverandi Landspítala. Þar með skapast mikil atvinna. Í sparnaðarskyni er þá auk þess hægt að sleppa því að hafa þar sjúklinga (þeir verða áfram í núverandi Landspítalabyggingum) en hafa þar risastóra deild sem fæst við áætlanagerð (m.a. gerð og endurskoðun áætlana um hvað gerist þegar/ef sjúklingar verða þar einhverntíma).
Svo má minna á hugmyndir um flugvallarmál:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=176&n=3739
Þetta skapar gríðarlega mikla atvinnu Ljómar upp.