Z.Natan er bestur. Svo einfalt er það.
Z.Natan er bestur. Svo einfalt er það.
Þú hefur ekki prófað mig!Fer í fýlu
Fæ ég ekkert atkvæði, ég orti sennilega ekki neitt. Leiki aðrir það eftir.
Ég á svo erfitt með að ákveða mig. Er skilafrestur á atkvæðinu?
Ég skal vera mesta bullskáldið og mesta skítaskáldið.
Þarfagreinir er ferhyrndasti mótstjórinn. Það er allavega á hreinu.
Fæ ég ekkert atkvæði, ég orti sennilega ekki neitt. Leiki aðrir það eftir.
Nema kannski eitt lítið smáljóð?
Bölverkur 2/4/08 09:25
Lífið er
ljúft en snúið.
Ljóðið hér
loks er búið.
Fæ ég þá atkvæði fyrir að vera fundvís á það sem kannski er ekki til?
Jæja.
Það er ljóst og varð strax að þessi skyndihugdetta að þræði og kosningu var vanhugsuð og jafnvel beinlínis heimskuleg. Er satt að segja sammála allri gagnrýni sem fram kom á hugmyndina og allar tillögur að breyttu fyrirkomulagi voru mjög til bóta.
Til að loka þessu er samt rétt að fram komi að Z Natan hlaut yfirburðakosningu – sem hagyrðingur ársins 2008 og þá í merkingunni Besti hagyrðingurinn. Er það verðskuldað og verður væntanlega til þess að greiða honum leið á framabrautinni. Óska ég honum til hamingju og megi kveðskapur hans lengi lifa. Bikarinn verður afhentur í hinu nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsi við Reykjavíkurhöfn um svipað leyti og byggingu hússins lýkur.
Þátttakendum þakka ég atkvæði og ábendingar.
Amen.