eiga það sameiginlegt að standa við Miðjarðarhaf.
Vakin er athygli á furðulegum nafngiftum sem eiga afmæli með 6 mánaða millibili.
Að hugsa sér...Brestur í óstöðvandi grát
Ha?
Þetta er forvitnilegt og spennandi, ef ég skil þig, og það flækir málið fyrir mér. . Hvert ertu að fara? Hvað ertu að meina?
Hvenær eiga byggðarlög afmæli? Þegar þau verða viðurkennd opinberlega sem byggðarlög? eða þegar ákveðinn tími er liðinn frá því að land þar var numið? Eða þegar fleiri en tveir eða þrír bæir og/eða hús með fólki nýttu sér svæðið?
Hvað sameinar Miðjarðarhafsbyggð við Norðurbyggð? Ertu að tala um og meina sameiginlega menningu? Ertu að tengja Norðrið við Miðjarðarhaf? Fólkið? Dýralífið? Gróður? Veðurfar? Vindátt?
Nafngift? Nú hlakka ég virkilega til að heyra dæmi um nafnatengsl.
Kífinn: Ég minni á að orðabelgur sá sem ég ritaði við síðasta félagsrit þitt, gildir einnig um þráðastofnun og ritun inn á þræði...
Vill einhver taka lyfin af manninum - eða í versta falli gefa honum meira.
Þetta er nú með furðrulegri þráðum, sem ég hef séð. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég vísaði einfaldlega til þess Að á stofndegi þráðar áttu bæði Aþena og Kata Lúnía afmæli hér á Póinu. Önnur var að mig minnir 3ja en hin 4ra ára og vakti þetta vægast sagt undrun. Klórar sér í höfðinu vegna ummæla huxa, huxar aðeins lengur, kemst ekki að einhlýtri niðurstöðu og fær sér kaffi
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann, sú var tíðin að mein voru fjarlægð með vinnu, ætlar sér að segja Rattati þetta við gott tækifæri
Fær sér líka kaffi
Skammast sín og hefði átt að lesa betur rafmæli í stað afmæli
Mér sýnist að Kífinn sé búinn að skýra mál sitt.
Það sýnist mér líka. Hann var að tala um nöfn rafmælisbarna sem voru samnöfn landsvæða. Heldur áfram að skammast sín fyrir fyrri langloku
Þá stendur samt eftir að félagsritið hans er illskiljanlegt. Starir þegjandi út í loftið
Hefur hann skrifað félagsrit um sama efnið?
Nei, reyndar ekki en það er samt mjög torskilið.
Efnið eða félagsritið hans?
Félagsritið og innihald þess.
Kíkir á það