Rokið gnauðar gluggann við
gaddurinn mig nístir.
Skátum engin gefur grið.
GSMinn tístir.
Sveinar hjálparsveita verða
svakalega bissí.
Sveinar hjálparsveita verða
svakalega bissí.
Jólasveinar, frjálsir ferða,
fjölda skóa piss´ í.
---------------------------------
Friðarhátíð frelsarans
fer að höndum b(r)áðum
Friðarhátíð frelsarans
fer að höndum b(r)áðum
ég með þreyttan þyrnakrans
þjösnast með öllum ráðum.
flækast um þræði fullir menn
fylgja reglum sínum
Friðarhátíð frelsarans
fer að höndum b(r)áðum
Haldin skal með geypiglans
(ef Guð er með í ráðum).
---
Jesúbarnið bráðum fer
að bjóða heim
flækast um þræði fullir menn
fylgja reglum sínum
lítið batnar bullið enn
á baggalúti mínum
Jesúbarnið bráðum fer
að bjóða heim;
Sússi skaffar séniver
& sjúklegt geim
---------------------------------
Tóbaksrjól & reykelsi
hann ríkulega býður
Tóbaksrjól & reykelsi
hann ríkulega býður.
Hjá lýðræðinu leikfrelsi
lymskulega skríður.
Bragareyra ekki var
öllum hérna gefið.
Bragareyra ekki var
öllum hérna gefið.
Halur ei á hrekki spar
hérna fékk á nefið.
Um miðaftan á mánudag
má ég Ísland líta.
Um miðaftan á mánudag
má ég Ísland líta
og tekið upp mitt fyrra fag:
í frónska dollu að skíta.
Í firnakulda og frerabyl
finnst mér best að múna.
Í firnakulda og frerabyl
finnst mér best að múna.
Þú hefur bara taugar til
taðendana kúnna.
góðar konur kunna það
kreista reður sperrtann
Góðar konur kunna það
kreisra reður spertann.
Þannig er hann Gunni grað,
gönduls með liminn hertann,
---------------------------------------
Blautlegar vísur Kata kvað
klám ar versta tagi.
Blautlegar vísur Kata kvað
klám af versta tagi.
Hérumbil því held ég að.
hún sé ekki í lagi.
Er nú komið, ætlum vér
yfrið nóg af klámi
Hér fyrr í kvöld hugðist ég botna fyrripart frá því í gær, en var of lengi að hnoða honum saman. Aftur varð ég svo of seinn með þann nýja, & brann síðan inni aftur & ennáný, koll af kolli – þangaðtil loksins núna, að hér gefst sæmilegur friður tilað birta afraksturinn:
- - -
Um miðaftan á mánudag
má ég Ísland líta.
Langar mig að losa þvag
& létt á kerfið skíta.
Í firnakulda og frerabyl
finnst mér best að múna.
Þjó að bera þarf ég til
þess að heilla frúna.
góðar konur kunna það
kreista reður sperrtann
fýsnareðlið fullkomnað
fái þær að snert´ ann.
Blautlegar vísur Kata kvað
klám af versta tagi,
þvíað hún var alltaf að;
unni sínu fagi.
Er nú komið, ætlum vér
yfrið nóg af klámi
Æi, nei – því fjarri fer,
fjandinn, að mér dámi.
---------------------------------
Mökum kerfið mannasaur,
mígum svo þar yfir
Mökum kerfið mannasaur,
mígum svo þar yfir.
Kúgun síðan ötum aur
anarkisminn lifir.
Kannski seint nú klukkan slær
kominn háttatími.
Kannski seint nú klukkan slær
kominn háttatími.
Hátíð er þó hér á bæ
í heldur litlu rými.
Jólasveinn nú sækir að
skyld'ann heita stúfur.
Ég breyti smá svo að stuðlun færist til betri vegar:
Jólasveinn nú sækir að
þeir segj'ann heiti Stúfur.
Í frosthreti á Fagradal
fór hann út um þúfur.
Þvörusleikir þar næst kemur
þokkalega hýr.
Þvörusleikir þar næst kemur
þokkalega hýr.
Þvöruglæpi frækinn fremur -
fjandi er hann skýr.
---
Jólin verða bráðum búin,
þótt byrjuð séu' þau varla.
Jólin verða bráðum búinn
þótt byrjuð séu varla.
Ertu Pó minn ráði rúinn
röska ég þekki jólakarla.
---------------------------------
þrettán daga eru jólin jafnan
jæja kæri vinur minn,
Þrettán daga eru jólin jafnan
jæja kæri vinur minn,
þartil klárast þrettándinn;
þannig líður jólatíminn, oftast.
Yfir köldu öli
einn um nótt ég sit.