Þá er gott að lesa ljóð
og leggjast upp í sófa.
og mæra sína þreyttu þjóð
sem þunglamaleg tófa.
Rímið lélegt líkar mér
löskuð er þá vísa
Rímið lélegt líkar mér
löskuð er þá vísa.
Last á rimi éi þakka þér
þrungin gerist krýsa.
----------------------------------
Vísur skulum gjöra góðar
græðum landans ótta.
Vísur skulum gjöra góðar
græðum landans ótta.
Frá rími og stuðlum þjáning þjóðar
þarf að leggja á flótta.
---
Gulur, rauður, grænn og blár,
gulllitaður, bleikur.
Gulur, rauður, grænn og blár,
gulllitaður, bleikur.
Fés mitt orðið fölt sem nár
finnst ég vera veikur.
Gott er að borða gulræturnar.
Gjaldeyri þær styrkja.
Gott er að borða gulræturnar.
Gjaldeyri þær styrkja.
Forðum því að falli turnar
flatt, með því að yrkja.
33 í bekk
þykir ansi mikið.
33 í bekk
þykir ansi mikið.
Fjölgi þeim um fimmtán krekk
færi það yfir strikið.
(Krekk er fleirtala af krakki, beygist svo: krekk, krekk, krekkum, krekka. Glottir eins og fífl)
---
Geiri norski glennir sig,
gjaldeyri hann sníkir.
Geiri Norski glennir sig
gjaldeyri hann sníkir
Karlinn vesæll manar mig
mærðarfullur kíkir ( í mína buddu. )
----------------------------------------------------------
Mín err horfinn hugarró
hræðist framtíðina.
Mín er horfin hugarró
hræðist framtíðina.
Inn með bjartan, blíðan Pó.
Burt með fátæktina!
---
Ég er pol og ég er djon.
Ég er djords og ríngó.
Ég er po og ég er djon
Ég er djords og ringo.
Algert flón og jaka jon
jólasveinninn Dingo.
_------------------------------
Allir þeir fari í fúlan rass
færibanda álfarnir,
Allir þeir fari í fúlan rass
færibanda álfarnir.
(Nú sit ég hjá og segi pass
sem og hinir bjálfarnir.)
Nú er allt á niðurleið.
Nú eru margir snauðir.
Nú er allt á niðurleið
Nú eru margir snauðir
brjáluð þjóð og bálareið
bankareikningar auðir
Aurapúkar áttu fé
ekkert hafa núna
Aurapúkar áttu fé
ekkert hafa núna.
Þá er ráð að krjúpa á kné
í kirkju, og efla trúna.
Ríður yfir okkar þjóð
allskyns böl og hamfarir.
Ríður yfir okkar þjóð
allskyns böl og hamfarir.
Vertu núna vinan góð
og við mig eigðu samfarir.
Ruslapokinn rifinn er,
rjómi útum allt
Ruslapokinn rifinn er,
rjómi útum allt.
Þrifin löngum leiðast mér
mitt lán er furðuvalt.
Hrekkjavöku halda þeir
sem hamborgara éta.
Hrekkjavöku halda þeir
sem hamborgara éta.
Dulbúast sem Grani Geir
Ganga um og freta
Í Seðlabanka situr kall
svakalega feitur
'i seðlasbanka situr kall
svakalega feitur.
Fauskurinn með braska brall
brosandi,undirleitur.
--------------------------------
Krónan var á báli brend
bölvun þein er gerðu.
Í seðlabanka situr kall
svakalega feitur.
Ínnan dyra hefur hjall
harðfidsk, líka geitur.
------------------------------
Krónan orðin í taumi treg
tæplega á vetur setjandi.
Krónan orðin í taumi treg
tæplega á vetur setjandi.
Þessi vísa er leiðinleg og letjandi.
---
Nú er kominn nóvember
nálgast óðum jólin.