Hæ Salka................
Salka hún er sæt og prúð
syngur allan daginn
Glassúr ber á gamlan snúð
gasalega laginn
Hæ Nafni!
Nafni hann er næs og gegn
naskur alla daga
Góður er og þrifinn þegn
Þannig er hans saga
Jájá... yrkiði bara szkammirnar ykkar! Ég segi bara komdu fagnandi!
já, það hef ég... en ég er arfaslakur vísnasmiður hins vegar.
Ég hef verið að læra að kveða rétt að í Hagyrðinga-verksmiðjunni.
Mínar vísur eru bara æfingar.
Stökur eru eina formið sem ég hef æft mig á.
En almáttugur hvað það eru margar tegundir kvæða, sem ég á enn eftir að læra.
Guð minn almáttugur, frelsarinn, guðspjallamennirnir, postularnir, lærisveinarnir og allir englarnir á himnum... já.
Lyftir annarri augabrúninni
O ætli það.
Já, vertu velkomin, Salka.
Megi þér farnast hér sem bezt.
Annars skil ég ekki þessa endemis linku í félaga mínum, Heiðglyrni. Karlinn er farinn að eldast. Hér gildir bara að kveða samkvæmt ströngustu reglum, annars eru menn (karlar og konur) ekki taldir með í þeirri göfugu íþrótt.
SBR.:http://www.baggalutur.is/gestapo/posting.php?mode=quote&p=352605
Salka Valka skónum á
sveiflar sér í dansinn.
Hennar herra ekki má
hugsa bara um kransinn.
sk- getur ekki stuðlað við s- og sv- . Svo er of langt (tvær kveður) á milli hnerra og hugsa!
Ef þú kannt svo ekki heldur að synda þá er ég til í að taka þig í tíma. Frítt!
Sko Sundlaugur minn, eins og hundspottið sagði á sínum tíma „Það passar ekki alltaf að míga utan í staurinn" Það eru stundir og svo eru aðrar stundir. Gnýstuðlar eru náttúrulega hrikalega kósí umræðuefni en öllu má nú ofgera. (Elskan, nei ég kom ekki heim með blóm, en veistu hvað ég kom með í staðin, gnýstuðla..!..) Sundlaugur þú sérð það sjálfur þetta bara passar ekki.
.
Ég meina fari það í hoppandi hreistraða hornstrandaýsu þetta var eitt af hennar fyrstu innleggjum og hún var ber í dansskónum, ég meina maður er nú bara mannlegur (og greinilega ekki farin að eldast nóg).
.
Nei Sundlaugur Riddarinn sendir þessi öldrunar ummæli með afli heim til föðurhúsanna. Elsku drengurinn minn.
Snilldar innlegg þetta frá Riddaranum...
Hammórammó.
Af hverju ertu að skoða þriggja ára gamla þræði svona um hámorguninn?