Sest niður við borð
Mi chiamo Hvæsi, Io sono islanda.
Prendere
io prendo
Tu prendi
Lui prende
Lei prende
voi Prendiamo
noi Prendete
Loro prendono
Hexía, er þetta rétt ?
Í fljótu bragði sýnist mér þetta vera rétt - en þess ber samt að geta að hausinn minn er ekki rétt skrúfaður á þessa dagana. Í gærkveldi reyndi ég að segja Uno gelato cioccolato en það kom allt vitlaust út og ég sagði um það bil Una gelata cioccolatte. Slæmt, afar slæmt.
En maður segir Io sono Islandese en ekki Io sono Islanda - annars ertu að segja að þú sért Ísland. Slík staðhæfing er aldrei góð hugmynd, en sjaldan verri en einmitt á þessum viðsjárverðu tímum.
Hins vegar get ég alveg minnt þig á að þú þarft alls ekki að segja Io sono Islandese því það er nóg að segja bara Sono Islandese. Í stuttu máli þá nægir að beygja sögnina rétt og þá er fornafnið orðið óþarft.
Islanda è la piú grande grande? Klórar sér í höfðinu
Eða svona ? Klórar sér í höfðinu
l'Islanda è il più grande paese nel mondo.
Jújú, passar. En ég var að reyna að gera þetta à la Dorrit. Glottir eins og fífl
Æjá, ég missti eiginlega af þeim brandara.
Hélt fyrst að Kargur væri bara svona illa gefinn. Glottir eins og fífl
Spurning hvort maður kíki í fjörðinn fagra í janúar og fái smá kennslu ? Flautar sakleysislega og stingur höndunum í vasann
Já það er alveg spurning... en ef ég drullast ekki til að fara að rifja ítölskuna mína upp þá endar með því að þú kennir mér... Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Er ekki nóg að baða bara út höndunum og æsa sig? Starir þegjandi út í loftið
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Mér sýnist það virka á götunum hérna.
Baðar út höndunum, æsir sig og telur upp nokkrar ítalskar matartegundir, ásamt því að segja nokkrum sinnum Ferrari og Alfaromeo og fiatuno
Jú... það virkar ágætlega ef maður er að fjasa yfir umferðarteppunni. Virkar samt ekki eins ágætlega ef maður þarf nauðsynlega að finna lækni því barnið þitt er að deyja eftir að hafa étið uppþvottavélarduft. Eða DDT... Lítur á Karg og heldur áfram með minningargreinina
Virkar heldur ekki ef maður er að basla við að panta flatböku í gegnum síma....
Iss, maður segir bara Pizza pepperoni, pronto! Glottir eins og fífl
Er ekki nóg að baða bara út höndunum og æsa sig? Starir þegjandi út í loftið
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri