,
Um konur nú ég kveða vil
kýs þær öðru fremur.
Gott er að fara beggja bil
björgin engan lemur.
-------------------------------
Oft er kátt í kotinu
kveða allir saman.
Oft er kátt í kotinu,
kveða allir saman.
Skálkarnir í skotinu
skárra hafa gaman.
Klárt er allt og kvitt í dag,
kvöldið leið án sorga.
Klárt er allt og kvitt í dag,
kvöldið leið án sorga.
Fljótt á þetta festi brag,
fyrripartinn borga.
Botninn er suður í Borgarfirði
brotinn og lítils virði.
Klárt er allt og kvitt í dag,
kvöldið leið án sorga.
Í fyrramálið finnst mér lag
feita skuld að borga.
Botninn er suður í Borgarfirði,
brotinn og lítils virði.
Gallaðir stuðlar & gífuryrði;
glötuð & óþörf byrði.
------------------------
Greiðslustöðvun gerist þörf,
gisnar hár á skalla
Greiðslustöðvun gerist þörf,
gisnar hár á skalla.
Skelfist kambur skæðishvörf
skuldahalar falla.
Hári og skeggi hygg ég sé
hagkvæmast að safna
Hári og skeggi hygg ég sé
hagkvæmast að safna
Ekkert lengur á ég fé
aðeins lista krafna
Frjálshyggjan er fallin nú
fer nú allt á hausinn
Frjálshyggjan er fallin nú
fer nú allt á hausinn
Þar á meðal þjóðarbú
þýzkum skuldum ausin.
---
Nú er mál að yrkja óð
Einhvern veginn svona:
Nú er mál að yrkja óð
Einhvern veginn svona:
Fjallkonan í feiknarsjóð
er fíkin, vændiskona.
Gott er að reyna sjálfan sig
að selja úti á horni
Gott er að reyna sjálfan sig
að selja út á horni.
Kanski ég bara manni mig
mjölið fæ úr korni.
------------------------------
Kæru vinir dönsum dátt
Dabbi reddar öllu.
Kæru vinir dönsum dátt
Dabbi reddar öllu.
Oftast ketið etur hrátt
með Eyvindi og Höllu.
---
Stutta sögu segja skal
sem svona hljómar:
Stutta sögu segja skal
sem svona hljómar:
Í sólarbjörtum sæludal,
söngur ómar.
Margir huga ættu að
innri ró og friði.
Margir huga ættu að
innri ró og friði.
Láta renna ljúft í bað
og liggja´ og safna ryði.
Styttist nú í stuð og jól
stingum saman nefjum.
Styttist nú í stuð og jól
stingum saman nefjum.
Ég hyggst sauma síðan kjól
úr sultuberjatrefjum.
---
Óðum líður október;
er hann næstum hálfur!
Óðum líður október;
er hann næstum hálfur!
Bráðlega til fjandans fer
flest um heimsins álfur.
------------------------
Vitlaust gera vil ég allt;
valda miska´ & tjóni
Vitlaust gera vil ég allt;
valda miska´ & tjóni
gjörnýta mér gengi valt
sem geðbilaður dóni.
Bæta mig ég bráðum vil
og bernskupörin laga.
Bæta mig ég bráðum vil
og bernskupörin laga.
Í haust ég lærði hér um bil
að hengja úlpu á snaga.
---
Gjarnan fæst við fræðirit
af flestum gerðum, smá og stór.
Gjarnan fæstvið fræðirit
af flestum gerðum smá og stór.
Aðra til þess vantar vit
væblast um og moka flór.
------------------------------------
Norðan áttinn heljar hörð
hreint er menn að drepa.