Hvullz kom með fyrstu þrjá og Andþór negldi þetta.
Hvullz?? Ég segi nú bara eins og Ritstjórn í einni af dagbókarfærslum sínum, zetunni berst sannarlega liðstyrkur úr óvæntri átt.
Fóstraði Eðvarð og fjölskyldu hans,
fallega kappinn syngur
við hann ég sagði farvel Frans
í fylkingabrjósti slyngur.
Napóleon?
Fóstraði Eðvarð og fjölskyldu hans, - ?
fallega kappinn syngur - Dýnamít (eða dansaði hann bara)
við hann ég sagði farvel Frans - Bónaparte
í fylkingabrjósti slyngur. - dýrabær
[quote="Steinríkur"]Napóleon?
Fóstraði Eðvarð og fjölskyldu hans, - ?
fallega kappinn syngur - Dýnamít (eða dansaði hann bara)
við hann ég sagði farvel Frans - Bónaparte
í fylkingabrjósti slyngur. - dýrabær[/quot
ekki rétt
Er kannski hægt að fá vísbendingar?
Fóstraði Eðvarð og fjölskyldu hans,
fallega kappinn syngur
við hann ég sagði farvel Frans
í fylkingabrjósti slyngur.
Eðvarð þessi er útlendingur - en hann ber ekki nafnið sem ég er að biðja um
Hinir eru Íslendingar - sprelllifandi og áberandi - sérstaklega sá síðasti nú um mundir.
Geir?
Fóstraði Eðvarð og fjölskyldu hans, ?
fallega kappinn syngur Geir Ólafs
við hann ég sagði farvel Frans Drapst þú Geirfinn?
í fylkingabrjósti slyngur. Geir Haarde
Geir?
Fóstraði Eðvarð og fjölskyldu hans, ?
fallega kappinn syngur Geir Ólafs
við hann ég sagði farvel Frans Drapst þú Geirfinn?
í fylkingabrjósti slyngur. Geir Haarde
ekki rétt -
Fóstraði Eðvarð og fjölskyldu hans,
fallega kappinn syngur
við hann ég sagði farvel Frans
í fylkingabrjósti slyngur.
1. Ólst ekki Edvard Grieg upp í Björgvin?
2. Björgvin Halldórsson
3. Björgvin Franz Gíslason
4. Björgvin G. Sigurðson.
Fóstraði Eðvarð og fjölskyldu hans, - Borgin Björgvin sem fóstraði subbónistann Edvard Grieg
fallega kappinn syngur - Björgvin bó Halldórsson
við hann ég sagði farvel Frans - Björgvin Frans leikari Gíslason Rúnars Jónassonar
í fylkingabrjósti slyngur. - Björgvin samfylkingargaur krísuráðherra og næsti forsætis.
Fokk. Hvussi var á undan meðan ég var að flúra svar mitt óþarfa orðskrúði. Gott hjá honum!
Ein lauflétt:
Ókristilegur í andstöðunni.
Eigi kátur, rekinn burt.
Rennsli vatna reikna kunni.
Rífur skó af hverjum durt.
Þessi er býsna góð - lausnin er í felulitum svo hinir geti líka spreytt sig:
1: SIgurjón Þórðarson
2. Sigurjón Kjartansson?
3. Sigurjón Rist
4. Sigurjón digri.
Fóstraði Eðvarð og fjölskyldu hans,
fallega kappinn syngur
við hann ég sagði farvel Frans
í fylkingabrjósti slyngur.
1. Ólst ekki Edvard Grieg upp í Björgvin?
2. Björgvin Halldórsson
3. Björgvin Franz Gíslason
4. Björgvin G. Sigurðson.
Þetta er komið
Ein lauflétt:
Ókristilegur í andstöðunni.
Eigi kátur, rekinn burt.
Rennsli vatna reikna kunni.
Rífur skó af hverjum durt.
ég held ég sé með þetta allt á hreinu:
Sigurjón Þórðarson ´hinn frjálslyndi
Sigurjón fyrrum Landsbankastóri
Sigurjón Rist vatnamælingamaður
Sigurjón digri "takið af ykkur skóna" "hvað ertað bóna?"
Þá er bara að skella inn næstu - sú ætti líka að vera nokkuð auðveld.
Hennar nafn er heiðið pár.
Held ég önnur syngi.
Í festum sat hún fjölmörg ár.
Frumkvöðull á þingi.
Hennar nafn er heiðið pár.
Held ég önnur syngi.Ingeborg í laginu " Ég á gamla frænku, sem heitir Ingeborg" ?
Í festum sat hún fjölmörg ár. Ingibjörg konan hans Nonna Sig sat í festum 12 ár.
Frumkvöðull á þingi. Ingibjörg Bjarnason, fyrsta gellan á þinginu.