Nýtt lag er hér með opinberlega tekið til meðferðar og spurningauppboðs.
Lagið fjallar um mann sem á passíft aggressífan hátt þverneitar að upp úr sambandi hans slitni því annars muni það hafa skelfileg áhrif á hann sjálfan. Hann syngur sem sagt til elskhuga síns í þessum hálfgerða hótunartón.
Ekki mikið umfjöllunarefni en lagið er þekkt og gott.
Chicago - If you leave me now?
Rangt í báðum tilfellum. Chicago uppástungan er ansi góð þó röng sé.
Bein tilvísun er í lagið í öðru lagi sem er afar þekkt. Það lag er líklegra þekktara í dag en umspurt lag, þó það sé enn þekkt.
Er hægt að fá uppgefið tímabil?
Ég eiga vil þig einn... ó segðu ekki að ég sé ... aðeins of seinn♪
Man ekki httiti lagsins en Vilhjálmur heitinn Vilhjálmsson söngvari söng það Vinsamlega ruglið Vilhjálmi heitnum söngvara ekki saman við Vilhjálm heitinn Vilhjálmsson fyrrverandi borgarstjóra, sem er reyndar ekki dauður en er samt pólitískt dauður eftir REI-málið

Ég er líka nokkuð viss um að þetta sé lagið. Þú átt mig ein, held ég að það heiti.
Þú átt mig ein, mín ást er hrein, ég vil að þú vitir það nú þú verður mér trú um öll mín ár...
Og svo uppáhalds kaflinn minn í laginu: Ég bið að bólið sé hlýtt er ég birtist og stend þér við hlið....
Djefuls karlremba. Svipast um eftir Kargi
Getur það verið Don't Leave Me This Way með Thelmu Houston? Það voru líka einhverjir hressir strákar sem ég held að hafi verið frá Englandi sem tóku þetta lag, hugsanlega áttu við sama lag í þeirra flutningi. Getur það verið?
Getur nokkuð verið að þetta sé "Þú komst aldrei aftur til mín...."?
Við fáum sennilega aldrei svarið því Hakuchi hefur ekki sést hér í marga mánuði
Hvert fara Baggalútar ef þeir sjást ekki í marga mánuði? Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Sennilega í meðferð.
Í illa meðferð hjá óvinum ríkisins já ... Starir þegjandi út í loftið