Kvarkar eru búnir til úr þrókum. Hver kvarki er úr þrem þrókum. Ég veit það.
Heyrst hefur að þeir séu byrjaðir með prufuárekstra við lágt orkustig LHC.
Gæti það verið að þessir litlu árekstrar skapi lítil svarthol.
Við vitum að öll gögnin úr rannsókninni eru unnin í tölvum við háskóla um allan hnöttinn.
Gæti verið að svartholin hafi með þessu móti borist á internetið. Við vitum öll að meirihluti peninga nútímans er á internetinu.
Gæti það verið að þessi litlu svarthol sogi til sín fjármuni.
Er það ekki augljóst að LHC er orsök fjármálakreppunnar?
Áhugaverð pæling... Pælir
Ég hélt að þetta væri hin týnda tímavél. Minnkar
Hin? Eru tvær tímavélar týndar?
Vissuð þið að CERN þróaði Veraldarvefinn?
Klórar sér í höfðinu
Ætli Veraldarvefurinn sé þá einskonar stökkbreytt svarthol?
Vissuð þið að CERN þróaði Veraldarvefinn?
Klórar sér í höfðinu
Ætli Veraldarvefurinn sé þá einskonar stökkbreytt svarthol?
Jebb. Það gleypir bara eina vídd, tímann.
Hm. Já. Það útskýrir vissulega margt.
Sér að börnin eru að komast á kynþroskaaldurinn og áttar sig skyndilega á gífurlegri hæfni Veraldarvefjarins til að gleypa tíma
Jahérna hér!
Fölnar upp og verður snjóhvítur
Þetta er augljóslega skelfilegt SAMSÆRIi. CERN byggði LHC en undirbjó það með því að FINNA FYRST UPP VERLADARVEFINN árið 1990. Alkunna er að TÍMINN líður á öðrum hraða á vefnum en utan hans og er því augljóst að TÍMAVJELAR koma við sögu sem bendir til að CERN geti sveigt rúmið. Auk þess er vefurinn notaður við DREIFINGU OG MIÐLUN ýmissa upplýsinga, m.a. um FJÁRMÁLAMARKAÐI. Það er því augljóst að framundan er HEIMSENDIR, ekki þó ALHEIMSENDIR heldur FJÁRMÁLAMARKAÐAHEIMSENDIR þar sem agnarsmá svarthol eru framleidd á vegum CERN í LHC og síðan sleppt út á WWW og síðan FJARSTÝRT frá CERN til að GJÖREYÐA fjármálamörkuðum heimsins. Árangurinn má sjá í ÖLLUM FALSMIÐLUM HEIMS. Tilviljun ? Nei.
Fölnar enn meir

Hleypur í felur með forsetann
Svarar mjög skrækróma
ÞAð var einhver að leika sér með Helíumið...
EKKI HORFA SVONA Á MIG!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér