'ann er stór en 'ann er líka
annarlegur.
Auk þess telst hann Óli píka
ansi tregur.
Tregur er ann Billi bil
blöðunum að fletta.
Æfinlega Skabba skil
skætingur er þetta.
Þetta og hitt, jafnt þitt sem mitt
er þynnt og stytt.
Enda þyki ég eftir splitt
svo ósköp „fitt“.
„Fitta“ þykir fyndið orð
hjá fullum Svíum
á fylleríum.
Fyllerí í Fjarðarbyggð
fjörug eru oft
kemur oft að konum styggð
með klofið upp í loft
Lofta ég út lúkarinn.
Leggst í slappan dívaninn.
ÚIpu treð ég undir kinn.
Óðar draumalandið finn.
Finnur sagði "Hó hó hó,
hér er Íslendingur!"
Kannski sé nú komið nóg,
kæri vitleysingur.
Vitleysingur víst ég er
og vísa þá til rita.
Út af sporum æ ég fer
er ég vísum drita.
Dritar frá sér vísdóm vænum
visku brunnur Shirke er.
Svona til að bjarga bænum
böglast þetta fyrir mér.
Mér er hlýtt á höfði nú
með hatt og loðið skegg.
Kaldi vetur, komir þú,
þú kvefar ekki segg.
Segginn hrjáir mæðan mörg
mikið jú,sumir þola,
Vetrar storma, kröpin körg
og kulda gamla bola.
Bola- ertu -bítur,
Bóbó minn.
Einskis- ertu -nýtur,
eyminginn.
Eyminginn hann Bóbó bítur
brönugras og arfakló.
Eftir viku skömmin skítur
skritið,eitthvað undir bjó.
Býr í mönnum misjöfn lund
og margbreytileg elja:
Á lygar oft þeir leggja stund
og lítilmagnann kvelja.
Kvelja annars líf er ljótt
löðurs mamnna valið
Óþokkarnir finnast fljótt
frábært,hef ég talið.
Talið var og talið enn
tel ég það þó varla
að drengir séu mætir menn
sem mæra svala karla.
[b][i]
Karla gamla tók ég tvo
Tuktaði vel og lengi.
Annan lét ég þvottin þvo
þvældi svo hinn á engi,.
Enginn veit sitt æviskeið
eða skapadægur.
Ávallt fer ég æsireið
enda tími nægur.